„Ævarandi skömm mun fylgja þessum ráðherra vegna þeirrar óskiljanlegu ákvörðunar að loka úrræði fyrir einn af okkar viðkvæmustu hópum, úrræði sem virkaði.“
Unniur Brá Konráðsdóttir.
Stjórnmál: Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum þingforseti, segir Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, fara með lygar. Unnur Brá skrifaði:
„Það er lítilmanlegt að ljúga. Enn verra ef þú ert ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Í þessu viðtali hendir Alma fyrirrennara sínum, Willum Þór undir rútuna og segir hann hafa ákveðið að semja ekki að nýju við Janus endurhæfingu. Það er alrangt, það er ósatt. Sannleikurinn er sá að það var sjálfstæð ákvörðun Ölmu Möller að ekki skyldi samið að nýju við Janus endurhæfingu. Og það án þess að tryggja að sá hópur sem þar naut þjónustu fengi skjól. Afleiðingarnar eru þær að ungt fullorðið fólk, sem glímir við vanvirkni, mörg hver með einhverfugreiningar – er án þjónustu. „Hlaðborð úrræða um allt land“ sem talað var um að ætti að grípa hópinn, er einfaldlega ekki til.
Ævarandi skömm mun fylgja þessum ráðherra vegna þeirrar óskiljanlegu ákvörðunar að loka úrræði fyrir einn af okkar viðkvæmustu hópum, úrræði sem virkaði.“