- Advertisement -

Vaxtahækkun: Aðeins launafólk tekur ábyrgð

Efnahagsmál: Vilhjálmur Birgisson er ekki minna vonsvikinn en flestir aðrir landsmenn með vaxtahækkun Seðlabankans:

„Þessi hækkun vaxta eru mikil vonbrigði – bæði fyrir heimilin í landinu og skuldug fyrirtæki sem þegar eru undir miklu álagi. Hún kemur á versta mögulega tíma og grefur undan þeirri viðleitni sem launafólk hefur lagt í að ná tökum á verðbólgunni.

Það er sérstaklega sorglegt í ljósi þess að breiðfylking verkalýðshreyfingarinnar – Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn – ákvað að semja til lengri tíma með hófstilltum hætti. Markmiðið var skýrt: að skapa stöðugleika, draga úr verðbólgu og leggja grunn að lækkun vaxta. Launafólk tók ábyrgð og sýndi að það var tilbúið að leggja sitt af mörkum.

En nú blasir við önnur mynd.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Skjáskot.

Stjórnvöld, ríkið sjálft, ásamt verslun og þjónustu, hafa ekki róið í sömu átt. Það hefur skort vilja til að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni. Afleiðingin er sú að verðbólgan hefur ekki gengið niður eins og vonast var til – og nú eru vextir farnir að hækka aftur.

Við sjáum þetta skýrt á húsnæðismarkaði. Í mars 2024 voru verðtryggðir húsnæðisvextir um 4%. Eftir þessa hækkun eru þeir komnir í um 5% hjá Landsbankanum. Þetta er raunveruleiki heimilanna.

Því er óskiljanlegt þegar forsætisráðherra heldur því fram að vextir hafi lækkað um 2%. Hún veit að það er ekki það sem heimilin upplifa. Sú fullyrðing byggir á stýrivöxtum – en ekki þeim vöxtum sem fólk er í raun að greiða af húsnæðislánum sínum. Raunin er sú að frá undirritun kjarasamninga hafa verðtryggðir vextir hækkað um heilt prósentustig.

Þetta skiptir máli. Þetta eru ekki bara tölur á blaði – þetta eru tugir þúsunda króna á mánuði fyrir hvert heimili.

Staðan er því orðin sú að forsendur kjarasamninganna eru í verulegri hættu. Ef þróunin heldur áfram eru yfirgnæfandi líkur á því að þær bresti þegar líður á haustið. Það er alvarlegt mál.

Það sem vekur mesta ugg er að það virðist ekki vera skýr vilji hjá þeim sem bera ábyrgð á efnahagsstjórninni til að bregðast við. Á meðan launafólk hefur tekið ábyrgð, virðast aðrir ekki tilbúnir til að gera slíkt hið sama.

Það er ekki hægt að vinna bug á verðbólgu nema allir rói í sömu átt. Eins og staðan er núna, er það einfaldlega ekki að gerast – og afleiðingarnar bitna fyrst og fremst á heimilunum í landinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: