
Afkoma: Halla Gunnarsdóttir formaður VR, skrifaði:
„Það ríkir ótrúlegt andvaraleysi gagnvart þeim afleiðingum sem orkukreppan er líkleg til að hafa hér á landi. Hækkanir munu ekki aðeins birtast á dælunni, heldur í almennu vöruverði, flutningum, flugfargjöldum, matvælaframleiðslu og svo mætti lengi telja. Allt ratar þetta beint inn í verðbólguna og þaðan í allt sem er verðtryggt á Íslandi (nánast allt nema laun). Á endanum greiðir venjulegt fólk olíuverðhækkanirnar mörgum sinnum, þar á meðal úti í búð og í gegnum húsnæðislán sín eða leigu.
Auðvitað erum við máttlítil gagnvart sviptingum á alþjóðavettvangi, í öllu falli munu hærri stýrivextir ekki stöðva árásarstríðið gegn Íran, opna Hormússund eða endurræsa framleiðslu sem hefur stöðvast eða orðið fyrir skemmdum. En ábyrg stjórnvöld verða að líta á það sem þau geta gert og við höfum tæki til að draga úr högginu hér heima. Olíufyrirtækin þurfa að taka hluta af skellinum , frekar en að græða á honum eins og oft er raunin. En stjórnvöld eiga líka að íhuga alvarlega að draga tímabundið úr skattlagningu á eldsneyti til að draga úr verðbólguáhrifunum. Hagurinn af því gæti verið margfalt meiri en kostnaðurinn.“