- Advertisement -

Sönn íslensk sakamál: Afbrýðisamur og atvinnulaus

- aðstoðarmaður í bakaríi brást illa við uppsögn og hugði á hefndir

 

Í byrjun árs 1932 var hinum rúmlega þrítuga Herði Gunnarssyni sagt upp vinnu þegar bakarí sem hann starfaði í misssti viðskiptavini vegna stofnunar ríkisbakarís í Bankastræti 2. Hörður var ekki faglærður bakari, en hafði eigi að síður starfað talsvert við bakstur. Hann hafði engan áhuga á að finna sér annan starfsvettvang. Hörður var nokkuð drykkfelldur og herti mjög drykkjuna eftir að hafa misst vinnuna. Hann var nýfráskilinn. Mágur hans, Jón Ásmundsson, hafði starfað í sama bakaríi og Hörður, en þegar ríkisstjórnin hóf rekstur bakarís, var mágurinn fyrrverandi ráðinn þar í fullt starf. Hinn atvinnulausi Hörður kenndi mági sínum um hvernig komið var fyrir sér og lagði hatur á hann.

Jón Ásmundsson bjó með systur Harðar við Mjóstræti. Þeim Herði var ágætlega til vina. Nokkru eftir að Hörður missti vinnuna orðaði hann við Jón, hann ætlaði að brenna ríkisbrauðgerðina. Hann vildi að Jón aðstoðaði sig við íkveikjuna. Jón var tregur til þess en lét til leiðast eftir að Hörður lofaði að þá myndi hann greiða Jóni peninga sem hann skuldaði honum.

 Bensín á flösku

Um kvöldmatarleytið föstudaginn 14. janúar 1932 kom Hörður nokkuð slompaður á heimili systur sinnar og Jóns. Hörður vildi að þeir kveiktu í bakaríinu þá um nóttina. Jón var tilbúinn til þess. Þeir lögðu á ráðin og ákváðu að nota bensín til að tendra eldinn. Jón tók að sér að útvega bensínið en Hörður fékk sér blund á meðan, enda nokkuð við skál. Jón fór út og hafði með sér hálfflösku sem hann hugðist fylla af bensíni. Hann þurfti að fara á fleiri en einn bensínsölustað, því ekki vildu allir selja honum bensín.

Eftir að hafa fengið bensínið lagði Jón sig, því ætlunin var að fara ekki af stað fyrr en um nóttina. Klukkan tvö vöknuðu þeir félagar og hófu undirbúning fyrir næturverkið. Hörður vildi að þeir dulbyggju sig þar sem það gæti villt um fyrir sjónarvottum ef svo færi að einhver sæitii þeirra.

Klukkan rúmlega tvö lögðu þeir af stað. Þeir gengu eftir Skólastræti og virtu fyrir sér byggingarnar á Bernhöftstorfunni. Þeir sáu að gluggar í geymsluhúsinu, sem var sambyggt bakarísbyggingunni, voru lágir og ekkert fyrir þeim annað en vírnet. Félagarnir gengu í hægðum sínum framhjá húsinu og héldu göngunni áfram niður að höfn. Eftir að hafa dvalið þar nokkra stund gengu þeir aftur að bakaríinu. Þá var klukkan orðin hálffjögur. Hörður var ákveðinn í að bera eld að þe m vegg bakarísins sem næstur var bökunarofninum. Timbrið þar var þurrt og því mikill eldsmatur. Þegar þeir komu að Bernhöftstorfunni fór Hörður inn í portið en Jón stóð vörð í Bankastræti. Hörður reyndi að opna dyr og glugga, en gat ekki. Hann ákvað að fara heim til sín og sótti þangað naglbít. Þegar hann sneri aftur með naglbítinn vildi Jón að þeir færu inn um glugga á geymsluhúsinu Skólastrætismegin og kveiktu þar í. Hörður samþykkti þetta. Þeir gengu að syðsta glugganum þar sem Hörður klippti virnetið og Jón skreið inn. Hörður gekk síðan út að horni við verslun Hans Petersen og stóð þar vörð.

 Slökkvilið kallað út

Þegar Jón kom inn í geymsluhúsið kveikti hann á eldspýtu til að lýsa sér veginn í myrkrinu. Þegar hann var kominn að veggnum sem skildi að bakaríið og geymsluhúsið hellti hann bensíninu úr flöskunni og gætti þess vandlega að sem mest af því færi á millivegginn. Hann vætti einnig tusku með bensíni og bar eld að henni. Hann bar síðan logandi tuskuna að gaflinum sem varð samstundis alelda. Að þessu loknu hljóp Jón út. Vinirnir gengu síðan saman heim til Jóns.

Um klukkan hálfsex um morguninn var slökkviliðinu tilkynnt um eld í Bankastræti 2. Þegar að var komið var nokkur eldur í gaflinum milli geymsiuhússins og bakarísins svo logaði upp úr þakinu. Veður var gott og var eldurinn slökktur á skömmum tíma. Ekki urðu verulegar skemmdir á húsunum.

Snemma varð ljóst að um íkveikju var að ræða og ekki var þess langt að bíða að grunur beindist að Herði og Jóni.

Lágt andlegt þroskastig

Á gólfi geymsluhússins fannst hálfflaska, uppmjó og hálslöng. Lögreglu grunaði strax að flaskan tengdist málinu. Eftir að hafa gengið á milli þeirra sem seldu bensín varð uppvíst hvar bensín á flöskuna var keypt og hver hafði keypt það. Þegar lögregla tók að spyrjast fyrir um Jón komst hún einnig að því að Hörður og Jón höfðu verið talsvert mikið saman síðustu daga. Félagarnir voru yfirheyrðir og eftir þriggja daga þref játuðu þeir loks íkveikjuna.

Hörður bar að hann hefði ætlað að eyðileggja vinnustað mágs síns. Hann sagðist einnig hafa vonað að ef ríkisbakaríið brynni færðust viðskipti aftur yfir til bakarans sem hann hafði unnið hjá, sem yrði jafnvel til þess að hann fengi vinnu á ný

Geðlæknir komst að því að félagarnir væru báðir sakhæfir en sagði að andlegt þroskastig beggja væri lágt.

Undirréttur dæmdi þá til tveggja ára betrunarhússvinnu. Hæstiréttur staðfesti dóminn en með þeirri breytingu að dómurinn yfir Herði var þyngdur í 27 mánaða betrunarhússvinnu.

Nöfnum var breytt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: