- Advertisement -

Fúleggin í Valhöll

Til að tjóðra allar slíkar hugsanir Guðrúnar var Jens Garðar Helgason, nýliði á þingi, kjörinn varaformaður. Hann er yfirfrakki á Guðrúnu.

Sigurjón Magnús Egilsson.
Þorgerður Katrín og Bjarni. Hún er í pólitísku stuði. Bjarni ekki.

Stórmerkilegt er að fylgjast með fylgishruni Sjálfstsæðisflokksins. Nú er svo komið að rétt rúmlega sjónarmunur er á Sjálfstæðisflokki og Viðreisn. Núverandi forysta tók ekki við góðu búi þegar Bjarni Benediktsson játaði sig loksins sigraðan. Bjarni sem hafði áður boðað Evrópusambandið og upptöku evru.

Bjarni var snúið í hálfhring og honum gert að hafna alþjóðegri samvinnu, hvað þá meira. Við verðandi pólitísku þrotabúi tók Guðrún Hafsteinsdóttir sem hafði sett Evrópusambandið á sína dagskrá þegar hún var kjörin formaður Samtaka iðnaðarins og varaformaður Samtaka atvinnulífsins. Nú situr Guðrúnu í mjög óþægilegu hásæti í Valhöll.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Til að tjóðra allar slíkar hugsanir Guðrúnar var Jens Garðar Helgason, nýliði á þingi, kjörinn varaformaður. Hann er yfirfrakki á Guðrúnu. Sem kunnugt er var Jens Garðar formaður SFS og varaformaður SA. Hann hefur aldrei opnað gluggan til austurs. Í áttina að Evrópu.

Fyrrverandi varaformaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, leiðir Viðreisn sem er á góðri siglingu. Tímaspursmál virðist vera þar til hún og Viðreisn sigla fram úr gamla flokknum.

Málþófið sýndi flokkinn ganga erinda stórútgerðanna. Flokksfélögum og stuðningsfólki Sjálfstæðisflokksins er eðlilega brugðið. Ekki bætir pínlegt viðtal Helga Seljan við Guðlaug Þór Þórðarson úr. Þar varð Gulli gjörsamlega mát.

Forystubekkurinn í Valhöll er bara ekki velskipaður. Formaðurinn er til þess að gera nýliði í stjórnmálum og varaformaðurinn er enn grænn á bak við eyrun.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: