- Advertisement -

Óttinn

Bubbi Morthens birti fyrr í morgun þessa fínu grein, sem við leyfum okkur að birta hér:

Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér. Hann rænir mann rökhugsun, hann rænir mann orku, gerir mann dimman, útilokar rök, gerir mann árásargjarnan, svo eitthvað sé nefnt sem hann býður uppá. Ótti er líka notaður til að stjórna fólki. Til eru fyrirtæki, moldrík, sem nýta til dæmis óttann sem stjórnunartæki til að verja hagsmuni sína sem ganga þvert á hagsmuni þeirra sem þau eru að höfða til og leika sér með bakvið tjöldin.

Hinsegin fræðsla í skólum fer í taugarnar á sumu fólki sem fer mikinn um lífshættuna sem börn eru sett í, eða þannig tala þau. Kaþólskur prestur talar á svipuðum nótum og bætir við að Ísland sé nánast trúlaust og gefur í skyn að það sé hægt að afhomma fólk. Þá væri kannski best að byrja á prestum kirkju hans sem hafa stundað skefjalaust barnaníð í skjóli kirkjunnar eins og hefur verið að koma uppá yfirborðið á undanförnum árum.

Aðrir nýta sér óttann í sambandi við ESB umræðuna. Þjóðin er í höftum krónunnar og okurvaxta og hér er heil kynslóð ungs fólks sem getur ekki eignast húsnæði en hér er herjað á okkur með óttann að vopni. Eina leiðin til að sigrast á óttanum er að stíga inní hann, þá verður maður frjáls og myrkrið hverfur. Horfast í augu við hann og hann lítur undan. Óttinn er versti ferðafélagi sem nokkur maður getur valið sér en því miður eru til öfl sem telja hann góða fjárfestingu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: