„Févíti; að ekki verði lengur hægt að stela af verkafólki launum án afleiðinga“
Vinnumarkaður: Sólveig Anna formaður Eflingar skrifaði eftirfarandi grein. Þar segir meðal annars: „…ekkert annað til ráða en að krefjast sambærilegra hækkana og formaður VR fékk sér fyrir skemmstu.“
„Ég hef nú vikum og mánuðum saman sagt ýmsum fyrirmennum sem ég hef náðarsamlegast fengið að hitta hvað Eflingarfólk þarf til að líkurnar aukist mjög verulega á því að við segjum ekki samningum upp í haust. Févíti; að ekki verði lengur hægt að stela af verkafólki launum án afleiðinga. Leigubremsu; svo fólk þurfi ekki að sjá á eftir sístækkandi hluta ráðstöfunartekna sinna í vasa annara, og til að ná niður verðbólgunni. Uppsagnarvernd á almenna markaðnum; t.d. einhverskonar vernd fyrir þau sem komin eru með langan starfsaldur.
Allt eru þetta mál sem Efling hefur lengi haft á dagskrá en ekki fengið nokkra áheyrn vegna og öll eru þau án kostnaðar. Því hefði mögulega mátt halda að í yfirstandandi árferði væri töluverður, jafnvel mikill, áhugi hjá íslenskri valdastétt, pólitískri og efnahagslegri, á því að ganga með okkur frá málum eins og þessum í skiptum fyrir frið.
Undanfarið hefur mér stundum liðið eins og ég hafi sett eigin haus á silfurbakka og leiti í óðaönn að einhverjum sem vilji þiggja gjöfina. Framkvæmdastjóri SA, fjármálaráðherra, Seðlabankastjóri, framvarðasveit íslenskrar verkalýðshreyfingar; má ekki bjóða ykkur þöglan haus formanns Eflingar í skiptum fyrir ókeypis aðgerðir til að bæta tilveru vinnuafls höfuðborgarsvæðisins mjög verulega?
Enn hef ég ekki fundið nokkurn mann sem vill taka við hausnum. Ég á því varla annara kosta völ en að skrúfa hausinn aftur á og bjóða honum að hefja upp raustina, þá sérútbúnu verðbólguvæntinga-græju, til að kynda vel í björtu og heitu bálinu; kjarasamningar uppsegjanlegir í haust og ekkert annað til ráða en að krefjast sambærilegra hækkana og formaður VR fékk sér fyrir skemmstu; til vara og að lágmarki kennarahækkunina upp á átta prósent.“