- Advertisement -

Eiríkur Bergmann álitsgjafi The New York Times um Ísland og ESB

„Grænlandskrísan hitti svo sannarlega á viðkvæman punkt. Staðan hefur svo sannarlega breyst.“ 

Kristrún Frostadóttir.

Bifröst: Atkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands og Evrópusambandsins vekur athygli á alþjóðavettvangi. Nýlega var ítarleg umfjöllun í The New York Times um málið.

Í greininni er farið yfir hvernig breytt staða í öryggis- og alþjóðamálum – sérstaklega spenna sem tengist yfirlýsingum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð Grænlands – hefur flýtt fyrir pólitískri umræðu hér á landi.

Meðal álitsgjafa er Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Í umfjölluninni varpaði Eiríkur ljósi á þann þrýsting og þá valkosti sem þjóðin stendur frammi fyrir: „Fólki telur að það gæti neyðst til að velja á milli tveggja kosta.“

Fréttamenn The New York Times ferðuðust um landið til að fanga stemninguna og ræddu við fjölbreyttan hóp; allt frá þorskveiðimönnum og pylsusölum til kennara og æðstu ráðamanna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, segir við blaðið að svæðisbundin spenna hafi breytt viðhorfi almennings og fært utanríkismál framar í huga kjósenda. „Grænlandskrísan hitti svo sannarlega á viðkvæman punkt. Staðan hefur svo sannarlega breyst,“ segir forsætisráðherra.

Sjá nánar hér:

https://www.nytimes.com/2026/05/26/world/europe/iceland-eu-membership-trump.html


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: