- Advertisement -

Selja sjálfum sér fiskinn á undirverði

Fiskveiðar: Þórólfur Júlían Dagsson skrifaði:

„Íslenska ríkið heldur áfram að stimpla milliverðlagningu stórútgerðarinnar.

Þeir selja sjálfum sér fiskinn á undirverði. Veiðigjöldin lækka. Skattarnir lækka. Þjóðin, sem á fiskinn, situr eftir með brotabrot. Þetta er ekki samsariskenning. Ríkið sjálft staðfesti það í greinargerð með veiðigjaldafrumvarpinu 2025.

Þetta breytir eftirfarandi:

Þú gætir haft áhuga á þessum
  • 3. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003 segir að viðskipti milli tengdra aðila skuli verðlögð eins og ótengdra. Þeir gera það ekki.
  • 61. gr. EES samningsins bannar ríkisaðstoð sem skekkir samkeppni. Tapaðar tekjur ríkisins eru ríkisaðstoð. Það er það sem hefur verið að gerast.
  • 1. gr. laga um stjórn fiskveiða segir að fiskurinn sé sameign þjóðarinnar. Ekki sameign nokkurra fjölskyldna.

Nú er nóg komið. Við setjum af stað málskotssjóð. Kæra fer inn hjá ESA í Brussel, Eftirlitsstofnun EFTA. Þeir hafa heimild til að krefja ríkið um endurheimtu ólögmætrar aðstoðar.

Ef útgerðin getur ekki látið okkur í friði í okkar kerfi, þá svörum við fyrir okkur. Með lögum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: