- Advertisement -

Óska að Tómas megi endurheimta mannorð sitt – við þurfum á honum að halda

Sigurjón Magnús:

Umhyggjan og væntumþykjan leyndi sér aldrei. Með framkomu sinni sýndi Tómas mér stróbrotinn mann, og lækni.

Fyrir um tíu árum slasaðist ég illa. Brjóstkassinn mölbrotnaði, herðablað og fimm rifbein, auka annarra smærri áverka. Lunga lagðist saman. Þess vegna var ég lagður inn á hjarta- og lungnadeild LSP.

Þar varð Tómas minn læknir. Ég get varla með orðum lýst hversu vel hann reyndist mér. Og ekki bara mér. Hann átti til að koma seint að kvöldi til þessa fólks sem hann hafði skorið þann daginn. Umhyggjan og væntumþykjan leyndi sér aldrei. Með framkomu sinni sýndi Tómas mér stróbrotinn mann, og lækni.

Mikið óska ég þess að Tómas Guðbjartsson megi endurheimta mannorð sitt. Hið minnsta fái hann að verjast dómum og ásökunum um sinn innri mann. Við Íslendingar þurfum á honum að halda.

Gæti sagt svo margt til viðbótar, en geri ekki að sinni. Sendi Tómasi mínar bestu kveðjur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: