Stjórnmál:
Björn Valur Gíslason skrifaði:
Er er það endilega þingflokksins að ákveða hvernig og hvenær máli af þessu tagi líkur?
Þetta er athyglisvert mál að ýmsu leiti.
Alþingi fjármagnar rekstur þingflokka í samræmi við reglur þar um, þ.m.t. laun starfsfólk þingflokka. Framkvæmdastjóri þingflokks er samt ekki beinlínis starfsmaður Alþingis þó að þingið greiði launin hans. Starfsvettvangur framkvæmdastjóra þingflokksins er Alþingi, þar sem viðkomandi heldur að mestu til á meðan þing er störfum og hefur sömuleiðis góðan aðgang að öllu þinghúsinu, utan þingsalar.
Þingmönnum og starfsfólki Alþingsins hafa verið settar siðareglur sem ætlast er til að þeir fylgi og sýni með því gott fordæmi í störfum sínum.
Það verður að ætla að sambærilegar reglur gildi um starfsfólk þingflokka og um starfsfólk Alþingis og þingmenn, þ.e. að þeir verði að haga störfum sínum og framkomu í samræmi við reglur sem Alþingi setur þeim.
Það má því ætla að forseti Alþingis taki þetta mál framkvæmdastjóra Flokks fólksins til skoðunar og ákveði hvernig því verður best lokið af hálfu þingsins, hvað sem þingflokknum kann að finnast.
Eða hvað?
