- Advertisement -

Vill fjármálaráðherra einkavæða Landsvirkjun?

Landsvirkjun:

Stefán Ólafsson skrifaði:

Þetta er farið að líta út eins og plan. Fjármálaráðherra skipar nýja stjórn í Landsvirkjun og velur til formennsku innheimtulögfræðing sem kemur úr stjórn Viðskiptaráðs. Allir vita að Viðskiptaráð berst fyrir því að Landsvirkjun verði einkavædd, að hluta eða að öllu leiti. Vera má að Viðreisn sé sama sinnis.

Eins og Hörður Arnarson lýsir samskiptunum við stjórnina þá hefur hún fljótlega farið að þrengja að honum í forstjórastólnum. Hann byrjar að kvarta undan stjórninni um hálfu ári eftir stjórnarskiptin og segir svo af sér eftir eitt og hálft ár með stjórninni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…unnið hafi verið
að því að fæla
Hörð úr starfi.

Stjórnin hefur fundað ítrekað með ráðuneytinu um stefnu og breytingar en Hörður Arnarson forstjóri fékk trauðla áheyrn í ráðuneytinu, þó hann hafi óskað þess.

Stjórnin segir sjálf að ný vinnubrögð í samskiptum við ráðuneytið hafi í einhverjum tilvikum skapað núning milli stjórnar og forstjóra.

Þetta er farið að hljóma eins og planið hafi gengið út á að þrýsta Herði út úr fyrirtækinu, þrátt fyrir óumdeildan frábæran árangur hans í starfi. Hörður hefur sjálfur lýst því að hann telji að Landsvirkjun eigi að vera í þjóðareign.

Fjármálaráðherra þarf nú að svara því afdráttarlaust, hvort verið sé að vinna að sölu Landsvirkjunar og hvort unnið hafi verið að því að fæla Hörð úr starfi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: