- Advertisement -

Umboðslaus, því enginn kaus manninn

Stjórnmál:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það er hvorki lýðræðislegt né í samræmi við íslenska stjórnmálahefð að skipa ráðherra sem enginn landsmaður kaus til Alþingis, nema sérstakar aðstæður krefjist þess. Engar slíkar aðstæður eru uppi í dag. Því er undarlegt að landsmenn skuli sitja uppi með fjármálaráðherra sem enginn kjósandi kaus til þings. Hann nýtur einfaldlega ekki þess beina kjósendaumboðs sem aðrir ráðherrar byggja stöðu sína á.

Af því leiðir að ákvarðanir hans, sérstaklega þær sem ekki koma til kasta Alþingis, geta auðveldlega orðið fjarlægar hagsmunum þjóðarinnar. Tökum eitt dæmi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að flæma burt
afar farsælan
forstjóra.

Núverandi stjórn Landsvirkjunar, fjöreggs þjóðarinnar, var skipuð af Daða Má Kristóferssyni. Þegar hann tók við embætti lagði hann mikla áherslu á að stjórnarmenn yrðu valdir á grundvelli hæfni og samkvæmt reglum um stjórnarskipan ríkisfyrirtækja. Af þeirri framsetningu mátti helst skilja að slíkt hefði ekki tíðkast áður.

Munurinn á fyrra fyrirkomulagi og því sem nú gildir er hins vegar sá að áður komu allir stjórnmálaflokkar á Alþingi að tilnefningum í stjórn Landsvirkjunar. Það tryggði að stjórnin hefði tengingu við ólík sjónarmið og breiðari hluta samfélagsins. Nú er sú tenging rofin og stjórnin ber fremur svip af vali eins manns, líkist einkaklíku Daða Más.

Í yfirlýsingu sinni sýndi Daði Már fyrrverandi stjórnarmönnum Landsvirkjunar og þeim stjórnmálaflokkum sem komu að uppbyggingu fyrirtækisins lítilsvirðingu. Það er sérkennilegt í ljósi þess að Landsvirkjun var þegar eitt öflugasta fyrirtæki landsins þegar núverandi ráðherra tók við. Sá árangur varð ekki til á síðustu misserum heldur byggðist á áralangri vinnu margra einstaklinga og ólíkra ríkisstjórna.

En hver hefur þá árangurinn verið af nýrri stjórn og nýrri nálgun? Hún endaði með því að flæma burt afar farsælan forstjóra frá störfum. Um leið varð fyrirtækið fyrir orðsporsskaða sem auðveldlega hefði mátt forðast með betri stjórnarháttum og alvöru forystu.

Er þetta sú hæfni sem ráðherrann taldi svo mikilvæga þegar skipað var í stjórnina? Niðurstöðurnar eru slakar. Nú vaknar sú spurning hvort stjórninni hafi einfaldlega mistekist verkefnið. Hvað sem svarinu líður blasir við að enginn stjórnarmaður með eðlilega dómgreind hefði kosið að láta málin þróast með þeim hætti að Hörður Arnarson sagði af sér vegna traustsbrests sem hann upplifði.

Nú er kominn tími til að byrja upp á nýtt. Skipa þarf nýja stjórn Landsvirkjunar sem nýtur breiðara trausts og sterkari tengsla við samfélagið. Jafnframt þarf að endurmeta hvort Daði Már Kristófersson eigi áfram að fara með embætti fjármálaráðherra. Ráðherra sem enginn kaus til Alþingis þarf að sýna fram á framúrskarandi árangur til að réttlæta stöðu sína. Sá árangur er ekki augljós þegar litið er til Landsvirkjunar og stöðu efnahagsmála: verðbólga, kúgandi vextir og vaxandi atvinnuleysi.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: