Landsvirkjun:
Guðmundur Hörður skrifaði:
„Miðað við tímalínuna í Landsvirkjarmálinu þá er augljóst að það átti að halda almenningi og Alþingismönnum óupplýstum um alvarlegar viðvaranir forstjóra um afskipti ráðuneytisin af fyrirtækinu, möguleg lögbrot og hættu á að fyrirtækið yrði óstarfhæft.
Svör ráðherra á Alþingi og stjórnarformanns í fjölmiðlum eru svo augljós dæmi um þöggunartilburði og jafnvel blekkingar að málið hlýtur að verða tekið fyrir hjá Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.
→ Apríl 2025. Ný stjórn tekur við.
→ Nóvember 2025. Forstjórinn vekur athygli stjórnar á óeðlilegum afskiptum í rekstri fyrirtækisins og auknum samskiptum fjármálaráðuneytis og stjórnar utan aðalfunda. Telur hættu á að pólitísk afskipti geti leitt til að Landsvirkjun verði óstarfhæf vegna afstöðu ESA. Nefnir dæmi um fundi sem ráðuneytið hafi átt frumkvæði að með stjórn um málefni sem ekki ætti að ræðast við ráðuneytið og það óskað eftir upplýsingum sem óheimilt sé að veita. Segir forstjórinn telja skyldu sína að benda á að hugsanlega sé ekki farið að lögum og að það geti skapað alvarlega áhættu.
→ 6. janúar fundar fjármálaráðherra með stjórninni í ráðuneytinu án forstjórans þó að það hafi verið hann sem óskað eftir fundi.
→ Í júní 2026 sendir forstjóri stjórninni þriggja blaðsíðna minnisblað og gerir alvarlegar athugasemdir við stjórnarhætti.
→ 11. september sendir starfsmaður ráðuneytisins fjármálaráðherra minnisblað um fund sérfræðinga ráðuneytisins með formanni og varaformanni stjórnar og segir að stjórnin eigi erfitt með að sinna sínu starfi vegna vantrausts milli stjórnar og forstjóra.
→ 1. október er tilkynnt um starfslok forstjóra og hann gengur á fund forsætisráðherra (sem er afar óvenjulegt).
→ 19. október 2026 er fjármálaráðherra spurður á Alþingi hvers vegna forstjóri Lansdvirkjunar hafi hætt. Hann svarar að ástæðurnar hafa verið almenns eðlis. Svarinu lauk hann á orðunum: „Hér er sagan öll.“
→ 25. október segir stjórnarformaður aðspurð um fundi stjórnar án forstjóra að stjórnin hafi hist og borðað saman hádegisverð til þess að ræða fundarsköp og samstarf innan stjórnar.“