- Advertisement -

Kolla Bergþórs: „Hildur færi þá í bandalag við harðlínuöfl“

Stjórnmál: Hér er seinni hluti pistils Kolbrúnar Bergþórsdóttur á eyjan.is. Kolbrún er ekki mikið gefin fyrir Miðflokkinn.

„Þegar þetta er skrifað er enn ekki ljóst hvaða meirihluta Hildur hefur valið, en fullyrt er að Framsóknarflokkurinn verði hluti af meirihlutanum, sem er meira en sá flokkur á skilið. Það skal þó ekki haft af Framsókn að flokkurinn vann afrek eftir kosningar þegar honum tókst á ótrúlegan hátt að sannfæra þjóðina um að stórtap hans í borginni hefði verið frækinn varnarsigur.

Hugsanlega kýs Sjálfstæðisflokkurinn að vinna með Miðflokknum sem er popúlískur hægri flokkur. Hildur færi þá í bandalag við harðlínuöfl. Þar færi góður biti í hundskjaft – ef pistlahöfundi leyfist að taka svo til orða.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það gæti þvert á móti eyðilagt ýmislegt fyrir henni.

Harðlínuöfl fyrirfinnast þó ekki einungis í Miðflokki heldur einnig í flokki Hildar, Sjálfstæðisflokknum, en engan veginn verður séð að hún sé sjálf hluti af þeim hópi, þótt hún þurfi örugglega að umbera hann. Pistlahöfundur er ekki viss um að samkrull með Miðflokki myndi vinna með Hildi sem stjórnmálamanni. Það gæti þvert á móti eyðilagt ýmislegt fyrir henni. Það getur ekki haft góð áhrif að taka í hina lamandi hönd harðlínuaflanna og þurfa að láta þau vísa leið í einhverjum málum.

Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram langan loforðalista fyrir borgarstjórnarkosningarnar og kjörorðið var STRAX, sem er mátulega stutt og grípandi fyrir nútímamenn sem búa við hraða og þjást í auknum mæli af athyglisbresti. Sumt má vissulega gera strax en umfangsmestu og mikilvægustu verkefnin verða síst af öllu gerð samstundis.

Pólitískir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins munu ekki gleyma STRAX-inu og sjáist einhverjar breytingar ekki eftir skamman tíma mun það kalla á hæðnislegar athugasemdir um að flokkurinn hafi glatað öllu tímaskyni og þekki ekki lengur merkingu alkunnra orða, eins og orðsins strax.“

Hér er öll greinin hennar Kollu. Frábær grein.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: