- Advertisement -

,,Hættu að ljúga að okkur“

,,Við erum sammála um að framganga þín sé óásættanleg í garð umhverfismála og að þú hafir núll áhuga á að varðveita náttúru landsins.“

Jóna Fanney Friðriksdóttir.

Umhverfi: Jóna Fanney Friðriksdóttir skrifaði á Facebook:

,,Til iðnaðarráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar.

Ég hef kosið krata, X-Samfylkingu í áraraðir. Fíla Valkyrjunar (með hléum).

Hvað vakir eiginlega fyrir þér?

Mun þó aldrei nokkurn tíma kjósa X-S lengur, á meðan, þú Jóhann Páll Jóhannsson ert iðnaðar- og orkuráðherra – enda virðist það gleymast hjá þér að þú ert jafnframt umhverfisráðherra landsins okkar. Sem virðist vera algjört aukaatriði í þinni nálgun á djobbið.

Jóhann Páll Jóhannsson, þú veist jafnvel og ég að heimili landsins nýta aðeins um 5% orkunnar þegar þú talar endalaust um ,,orkuskort“ í landinu. Hættu að ljúga að okkur og reyna að manipúlera þjóðina. Óásættanlegt að hlusta á þinn málflutning.

Þér finnst örugglega smart að vera kominn í valdastöðu og að geta valtað yfir þjóðina, hratt og örugglega, án samráðs. Rosalega ungur, effektívur ráðherra, ha? Spjöld sögunnar…? Er verið að safna í eitthvað meira…? Hvað vakir eiginlega fyrir þér?

Jóhann Páll þú ert búinn að valta yfir almenning á mjög stuttum tíma þínu í embætti – þú hefur tekið einhliða ákvarðanir um allskonar sem hefur afdrifarík áhrif á nátturu landsins okkar, þ.m.t. rammaáætlun. Auðvitað með fullu samþykki ríkisstjórnarinnar.

Ég og mín stórfjölskylda erum flest fyrrum alla-balla-fólk – og þú – og þar með þín hersing – ert 100% búin að missa salinn hjá okkur öllum og fjölda annarra sem áður studdu X-S. Við erum sammála um að framganga þín sé óásættanleg í garð umhverfismála og að þú hafir núll áhuga á að varðveita náttúru landsins.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: