- Advertisement -

Styðjum herta útlendingastefnu Dana

„Það má rekja þá óstjórnina sem ríkti í málaflokknum allt til valdaltíðar Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra en þá voru boruð göt á útlendingalöggjöfina…“

Sigurjón Þórðarson.

Stjórnsýsla: Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Útlendingastefna íslenskra stjórnvalda hefur breyst með skýrum hætti frá því að Sjálfstæðislflokkurinn lét af „stjórn“ málaflokksins og núverandi ríkisstjórn tók við.

Það má rekja þá óstjórnina sem ríkti í málaflokknum allt til valdaltíðar Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra en þá voru boruð göt á útlendingalöggjöfina og lögð drög m.a. að 18 mánaða reglunni þar sem hælisleitendur fengu sjálfkrafa dvalarleyfi ef það dróst að afgreiða mál þeirra. Reglan hafði það í för með sér að umsækjendur gátu haft hag af því að tefja út í eitt afgreiðslu mála. Umrædd 18 mánaðarregla var lögð af með lagabreytingum sem tóku gildi nú í vor.

Mette Frederiksen.
Ljósmynd; Thomas Traasdahl/Ritzau Scanpix.

Nú berast fréttir af því að Danir hafi fengið 27 önnur lönd í Evrópu til þess að styðja við breytta túlkun á Mannréttindasáttmála Evrópu til þess að hægt sé að herða reglur um brottvísanir útlendinga sem hafa gerst brotlegir við lög. Ísland er eitt ríkjanna 27 sem studdi Dani um að breyta túlkun sem felur m.a. í sér að hægt sé að brottvísa útlendingum sem hlotið hafa eins árs fangelsisdóm.

Breytt túlkun er mikill sigur fyrir Mette Frederiksen formann danskra Jafnaðarmanna sem stóð fyrir breyttri stefnu flokksins. Það er jákvætt að gagnrýnisraddir systkinaflokka danskra Jafnaðarmanna á hinum Norðurlöndunum hafa að mestu þagnað og taka nú undir með Mette.

Rökstuðningur Dana fyrir breytingum og hertum reglum er að forgangsraða öryggi samfélagsins og almennings framar en réttindum erlendra glæpamanna.

Geta ekki allir tekið undir það með Dönum?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: