- Advertisement -

Þetta er einkavinavæðing andskotans

„Þau ætli til dæmis að selja malbikunarstöðina Höfða, Ljósleiðarann og Carbfix.“

Stjórnmál Þór Saari skrifaði:

Þetta heitir að afhenda mikilvæga innviði (utan Carbfix) og eigur almennings vildarvinum flokksins svo þeir geti grætt óendanlega. Það eru tvær malbikunarstöðvar á landinu og Malbikunarstöðin Höfði er önnur þeirra. Með einkavæðingu hennar mun verða til fákeppnisstaða, í raun einokun, í sölu á malbiki og verðið á því mun hækka mikið sem þýðir að kaupendur malbiks, sem eru sveitarfélög og ríkið (Vegagerðin) þ.e.a.s. almenningur í landinu, mun blæða. Fyrri meirihluti ætlaði reyndar að gera þetta líka þannig að það er enginn stikkfrí, en Reykvíkingar og aðrir landsmenn munu borga.

Það nákvæmlega sama gildir um Ljósleiðarann, þar eru Ljósleiðarins og Míla einu fyrirtækin.

Þetta er einkavinavæðing andskotans og hefur ekkert að gera með markaðsbúskap heldur að koma mjög mikilvægum innviðum í hendurnar á vinum og vandamönnum Sjálfstæðisflokksins og er frá öllum sjónarmiðum sér, nema þeim spilltustu, algerlega fáránleg hugmynd.

Það tók Sjálfstæðisflokkinn, Farmsókn og Viðreisn ekki nema viku að stimpla sig inn með spillingaröflum samfélagsins, einu sinni enn.

Svei þeim!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: