- Advertisement -

„…að haldinn verði svokallaður Þingmannadagur“

Magnús R. Einarsson skrifaði.

„Ég las í gær að þingfundi sem átti að halda laugardaginn fyrir Sjómannadaginn hafi verið frestað eftir að Jón Gunnarsson hélt tilfinningaþrungna ræðu á Alþingi og sagði það vanvirðu við sjómenn og fjölskyldur þeirra að halda fund degi fyrir Sjómannadaginn. Ekki hafði hann eitt orð um þá sjómenn sem neyðast til að verja þeim degi út á sjó. Ekki skæla þeir.

Nú geri ég það að tillögu minni að haldinn verði svokallaður Þingmannadagur sem yrði haldinn hvern mánudag eftir Sjómannadaginn. Aldraðir þingmenn verða verðlaunaðir, þingflokkar fara í kappróður, koddaslag og reiptog. Detta svo í það um kvöldið, að sjálfsögðu og auðvitað á kostnað okkar skattgreiðenda. Enginn þingfundur þann daginn og öllum bannað að fara á sjó því það væri auðvitað vanvirðing við hið háa Alþingi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: