Sjávarútvegur: Vigfús Ásbjörnsson skrifaði:
„Ég heyrði Þorgerði Katrínu segja í gær að Viðreisn hafi upphaflega verið stofnað um almannahagsmuni. Upphaflega!!!! En hvað svo, flokkurinn fór í ríkistjórn og frá þeim degi virðist tilgangur flokksins hafa snúist upp í andhverfu sína. Hanna Katrín raðar SFS fólki í efstu stöður ríkisins í stjórn fiskveiðikerfisins. Reynir að koma á kvótakerfi í lagareldi, lætur sig hverfa í allri umfjöllun um strandveiðar og aðra smábátaútgerð.
Byggðarsjónarmið eru ekki til í orðabók ráðherrans en hún stendur vörð um áframhaldandi samþjöppun auðs og valds með því t.d að koma útgerðum ekki undir 12% lagalega kvótaþakið. Stöðva ekki strax milliverðlagningu á fiski. Þad blasir við að Hanna Katrín er ekki sjávarútvegsráðherra þjóðarinnar, fyrir hvern er hún þá í þessu embætti ef ekki fyrir fólkið í landinu?“
