Stjórnsýsla: Sanna Magdalena, fráfarandi forseti borgarstjórnar, skrifaði:
Nýr hægri meirihluti í borginni vill fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar og nefnir að; „Í landinu gilda lög um þjóðfána Íslendinga og stuðst verður við þau.“
Fánareglur borgarinnar ná yfir miklu meira en íslenska þjóðfánann. Þær fjalla til að mynda um notkun fána Reykjavíkurborgar, flöggun annarra þjóðfána við opinberar móttökur í Höfða og heimild til að sýna samstöðu með mannréttindabaráttu og jafnrétti. Þá eru einnig fánastangir sem hafa verið notaðar til þess að flagga fánum sem varða málefni og viðburði tengdum Reykjavíkurborg.
Með þessu er verið að takmarka hvaða hópar, málefni og viðburðir fá sýnileika og stuðning í opinberu rými.
(Stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar eru Höfðatorg (Borgartún 8-16a), Höfði, Ráðhús Reykjavíkur og Tjarnargata 12.)
