- Advertisement -

„Verkalýðshreyfingin á aldrei að láta slíkar duldar skattahækkanir líðast“

Umræðan/Facebook: Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði:

„Já, þær leynast víða skattahækkanir á launafólk – skattahækkanir sem fólk tekur ekki strax eftir. Ein þeirra blasir nú við í tekjuskattinum.

Persónuafsláttur hækkar um 5,53%, á meðan 12 mánaða launavísitala hefur hækkað um 7,5%. Þegar persónuafsláttur og skattþrep fylgja ekki launaþróun er niðurstaðan einföld; ríkið tekur stærra hlutfall af launum fólks. Það er ekkert annað en skattahækkun, sama hvað hún er kölluð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ef skattkerfið fylgir ekki launaþróun þá er verið að hækka skatta – punktur.“

Fyrir einstakling á meðallaunum, um 850 þúsund krónur á mánuði, þýðir þetta tugþúsundir króna í aukinn skatt á ári vegna skattaskriðs. En áhrifin margfaldast þegar horft er á heimilin.

Á heimili þar sem bæði hjón eru með 850 þúsund krónur í mánaðarlaun, þýðir þessi duldna skattahækkun að yfir 140–160 þúsund krónur á ári færast frá heimilinu til ríkisins – vegna þess að persónuafsláttur og skattþrep hækkuðu ekki til samræmis við launavísitölu.

Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins um skattabreytingar er talað um að persónuafsláttur og skattþrep hafi verið „hækkuð“. Það sem ekki er sagt er að þau hækka minna en launavísitalan, og þar með er skattbyrði launafólks aukin í reynd.

Verkalýðshreyfingin á aldrei að láta slíkar duldar skattahækkanir líðast. Launabarátta missir gildi sitt ef ríkið étur launahækkanir fólks aftan frá með skattaskriði. Ef skattkerfið fylgir ekki launaþróun, þá er verið að hækka skatta – punktur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: