- Advertisement -

Er Seðlabankastjóri eini maðurinn með viti?

Við eigum að koma SALEK vinnunni af stað aftur og koma á vitrænu vinnumarkaðsmóteli og læra af reynslu annarra þjóða.

Guðmundur Þ. Ragnarsson.

Umræðan: Guðmundur Þ. Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, skrifaði eftirfarandi grein:

„Hvenær kemur að því að við þurfum ekki að hlusta á sömu innihaldslausu ræðurnar um orsök og afleiðingar verðbólgu og vaxta. Flestir sem við er rætt um vandann, kenna öðrum um og neita að viðurkenna augljósar staðreyndir.

Við erum með fólk sem er að stjórna landinu sem komst til valda með þvílíkum óheiðarleika að ég trúi því ekki að það leggist á koddann á kvöldin nema mjög vanlíðandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Ragnar Þór Ingólfsson ráðherra og fyrrum formaður VR.

Núna eru þetta sama fólk ráðþrota og veit ekki hvernig eigi að bjarga sér frá vandanum.

Síðan er það verkalýðshreyfingin með forystufólk sem náði völdum með því að vera á móti því að koma hér á vitrænu vinnumarkaðsmódeli og löngu komið í ljós að það hafði engar lausnir aðrar en spóla í sama vonlausa farinu.

Sumir eru komnir inn á þing og einn orðinn ráðherra.

Furðulegt að ráðherrann sé ekki að hvetja fólk til að fara á Austurvöll og berja í potta og tunnur eins og ástandið er í efnahagsmálunum núna. Hann væri örugglega búinn að því ef hann væri enn formaður VR í dag og ekki stæði á félögum hans í Flokki fólksins.

Nú er enn og aftur að koma í ljós að höfrungahlaup í kjarasamningum endar alltaf eins ef ekki er innistæða fyrir launahækkunum. Enda hefur núverandi forystufólk hreyfingarinnar engar aðrar lausnir en að flytja sömu innihaldslausu ræðurnar um að Seðlabankastjóri sé svo illa innrættur að hann leggist á koddann á kvöldin alsæll að geta kvalið almenning með vaxtahækkunum.

Nú er allur óheiðleikinn og afleiðingar hans að koma í ljós, þegar fólk sækir sér völd með innihaldslausum frösum og engum lausnum.

Fórnarlömbin er almenningur því miður.

Ég legg til að þessir aðilar hætti að kenna Seðlabankastjóra um og horfist í augu við staðreyndir. Við eigum að koma SALEK vinnunni af stað aftur og koma á vitrænu vinnumarkaðsmóteli og læra af reynslu annarra þjóða. Án þess verður ekki hægt að koma á efnahagslegum stöðuleika á hér á landi jafnvel þó við göngum í Evrópusambandið.

Við þurfum að losa okkur við óhæfa forustu verkalýðshreyfingarinnar og margir úr pólitíkinni mættu fjúka með.

Hugsanlega er Seðlabankastjóri eini maðurinn með viti!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: