- Advertisement -

Vilhjálmur: „Enginn má víkja sér undan sameiginlegu 2,5 prósenta verðþaki“

Vinnumarkaður:

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgeinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði:

„Nú er boltinn hjá ríkisstjórninni – ávinningurinn gæti orðið tvöfalt meiri en kostnaðurinn!

Nú hefur landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkt að stefna að því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á næsta ári. Þetta eru stór tíðindi og afar mikilvægt skref í þeirri baráttu sem við höfum staðið í fyrir því að ná niður verðbólgu og vöxtum. Nú er komið að ríkisstjórninni, verslun og þjónustu að sýna sama vilja og axla sína ábyrgð. Enginn má víkja sér undan sameiginlegu 2,5% verðþaki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég hef verið að skoða hvað það myndi kosta ríkissjóð að færa fyrirhugaðar 5,2% hækkanir krónutölugjalda niður í 2,5% og fella jafnframt niður sérstaka fjögurra milljarða viðbótarhækkun kílómetragjaldsins. Miðað við forsendur fjárlagafrumvarpsins er áætlaður kostnaður við það um 7,4 milljarðar króna. Þá myndi almennt kílómetragjald fólksbíla hækka úr 6,95 krónum í um 7,12 krónur á kílómetra í stað þeirra 8,05 króna sem nú eru fyrirhugaðar.

En skoðum hina hliðina á dæminu. Hreinar verðtryggðar skuldir ríkissjóðs námu um 744 milljörðum króna í lok ágúst. Ef okkur tekst með sameiginlegu átaki að ná verðbólgunni niður úr 5,6% í 3,5% myndu verðbætur af þessum skuldum lækka um 15,6 milljarða króna á ársgrundvelli, miðað við óbreyttan skuldastofn.

Ávinningurinn af lægri verðbólgu gæti því orðið meira en tvöfaldur á við áætlaða tekjulækkun ríkissjóðs vegna þessara gjaldabreytinga. Þá er ótaldur sá gríðarlegi ávinningur sem heimili, fyrirtæki, sveitarfélög og ríkissjóður gætu haft af lægri vöxtum.

Enginn má víkja
sér undan…

Það er morgunljóst að verkafólk getur ekki eitt enn og aftur axlað alla ábyrgðina á því að halda verðbólgunni niðri. Nú þurfa ríkisstjórnin, verslun og þjónusta að koma að borðinu með sveitarfélögunum og skuldbinda sig til að halda hækkunum gjaldskráa, vöruverðs og þjónustu innan 2,5%. Enginn má víkja sér undan þessari ábyrgð.

Við þurfum skýr svör frá öllum þessum aðilum núna, enda rennur frestur til að taka ákvörðun um framhald kjarasamninganna út 8. október. Það mun ráðast af viðbrögðum allra þessara aðila hvort okkur tekst að varðveita kjarasamningana og ná verðbólgunni niður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: