Hvaða drama-kóngafólks stælar eru þetta eiginlega? Og af hverju eru þau ekki spurð að því hvort fallist verði á hugmyndir Eflingar til að forða því að við segjum upp samningum?
Sólveig Annsa Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði:
„Efling hefur mánuðum saman sagt hvað við þurfum: Leigubremsu, viðurlög við launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum, og aukna uppsagnarvernd á almennum vinnumarkaði. Þetta þrennt er bráðnauðsynlegt fyrir verka og láglaunfólk og ekkert af þessu kostar. Samt lætur forsætisráðherra eins og við séum að biðja um einhverja ægilega stóra ófjármagnaða aðgerðapakka. Og framkvæmdastjóri SA, á milli þess sem hann talar eins og pólitíkus um greiningar og kortlagningar og hvað vinnumarkaðsmódelið sé ömurlegt, segir að ekki sé hægt að hækka laun meira.
Mér finnst þetta einstaklega furðulegt. Af hverju reyna þessir stjórar landsins ekki að setjast með okkur niður til að leysa málin þrjú sem ég hef talað um undanfarna marga mánuði? Hvaða drama-kóngafólks stælar eru þetta eiginlega? Og af hverju eru þau ekki spurð að því hvort fallist verði á hugmyndir Eflingar til að forða því að við segjum upp samningum? Af hverju er framkvæmdastjóri SA ekki spurður að því hvernig hann sjái fyrir sér að bæta uppsagnarvernd á almennum vinnumarkaði og hversvegna er forsætisráðherra ekki spurð að því hvenær leigubremsa verði innleidd og hvernig innihald tillagna um févíti muni hljóða?
Efling er langstærsta félag verkafólks á landinu og annað stærsta stéttarfélag landsins. Við höfum sýnt tvennt, ásamt öðru auðvitað, á undanförnum árum: Það er hægt að gera við okkur kjarasamninga og við erum tilbúin til að beita þeim tólum sem við höfum lagalegan og stjórnarskrárvarinn aðgang að til að knýja á um árangur fyrir félagsfólk. Það er því undarlegt svo vægt sé tekið til orða að sjá þau sem hafa það bókstaflega í hendi sér að leysa með okkur málin, láta eins og við séum ekki til og eins og þau séu umkringd einhverjum nötterum sem krefjist ófjármagnaðs lúxuslífs á þeirra persónulega kostnað. Það væri ágætt að fram kæmi hjá stjórunum sem og fjölmiðlum að þar er allavega ekki um Eflingarfólk að ræða.“