Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði í Moggann:

„Á Alþingi Íslendinga er enginn flokkur sem stendur fyrst og fremst með verkafólki, enginn flokkur sem setur kjör þeirra sem með vinnu sinni skapa verðmætin ofar kreddum. Þess í stað er boðið upp á flutning þráhyggjustefsins um hallalausu fjárlögin, stóra núllið. Í stað samstöðu eru skilaboðin til verkafólks hótun um aga á vinnumarkaði, um árás á réttindi okkar og getu til að berjast fyrir betra lífi.
Verkafólk á Íslandi hefur ekkert að gera við flokka sem endurtaka gamlar sósíaldemókratískar klisjur á meðan unnið er gegn hagsmunum okkar. Við þurfum viðurkenningu á því að stéttabarátta og baráttan fyrir lýðræði fara fram hlið við hlið. Önnur getur ekki án hinnar verið. Við þurfum stjórnmálamenn sem tala skýrt, standa með vinnuaflinu gegn auðvaldinu – stjórnmálamenn sem eru tilbúnir til að láta verkin tala.
Ísland þarf pólitíska forystu sem stendur með vinnandi fólki. Við eigum að hafna stóra núllinu – það er yfirlýsing um að áfram skuli haldið á vegferð sem á þessari stundu sogar hvert Evrópulandið á fætur öðru inn í hringiðu sístækkandi vandamála, þar sem möguleikarnir á raunverulegum lausnum á grafalvarlegum vandamálum færast sífellt fjær.“
Verkafólk á Íslandi hefur ekkert að gera við flokka sem endurtaka gamlar sósíaldemókratískar klisjur á meðan unnið er gegn hagsmunum okkar.
Grein Sólveigar Önnu er lengri. Hér er aðeins seinni hluti greinarinnar.