Sólveig Anna og Vilhjálmur yfirgáfu launafólk og skipuðu sér í fylkingu þeirra sem eiga og vilja eignast meir
Fús og frjáls skipuðu Sólveig Anna og Vilihjálmur Birgis sér í lið með þeim semharðast börðust gegn því að við hæfum samningaviðræður við Evrópusambandið. Mörg okkar hafa brugðist illa við þessu hliðarspori þeirra. Kjartan Valgarðsson er einn þeirra. Hann skrifaði:
„Samfélag okkar einkennist að mörgu leyti af átökum þeirra sem eiga og þeirra sem vinna. Þessara átaka sér stað daglega í fyrirsögnum, samræðum fólks og orðum og yfirlýsingum fulltrúa stéttsrfélags auðmanna og launþegasamtaka.
Ef ofangreind lýsing ætti sér ekki stað í raunveruleikanum væri búið að leggja niður ASÍ og SA.
Nýliðin barátta um samræður við ESB er enn ein birtingarmynd ofangreindra átaka. Þó yfirborðið væri hugmyndabarátta var hagsmunabaráttan sterkari, mikilvægari og það sem réði úrslitum. Óligarkar og auðmenn kostuðu öllu til, lögðu allt undir, þar með talið orðspor sitt, heilindi og trúverðugleika.
Á þetta fley ákváðu Sólveig Anna og Vilhjálmur að munstra sig. Þau tóku þátt í atlögu að hagsmunum launafólks, baráttu gegn ungu fólki sem dreymir um þak yfir höfuð, sitt og barna sinna. Og gerðu það með því að ljúga þau full og hræða með 50 eða 100 milljörðum eða herskyldu í her sem er ekki til.
Sólveig Anna og Vilhjálmur yfirgáfu launafólk og skipuðu sér í fylkingu þeirra sem eiga og vilja eignast meir, helst allt. Þau stefna í að verða viðskila við þá sem þau hafa barist fyrir og velja frekar að koma sér í mjúkinn hjá fína fólkinu.
Hafi þau skömm fyrir.“