- Advertisement -

ASÍ: 240 þúsund fyrir korterslanga fundi

Alþýðusamband Íslands:

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, skrifaði:

„Ekki veit ég hversu mikinn áhuga alþýða manna hefur á fjölda varaforseta Alþýðusambandsins, og eitthvað held ég að fjöldi þeirra snerti líf almenns launafólks lítið. En fyrst umræða um fjölda varaforseta er komin upp í tengslum við þing ASÍ, sem hefst á morgun, þá finnst mér rétt að leggja orð í belg.

Varaforseti hefur samkvæmt lögum ASÍ eitt hlutverk og það er að gegna í forföllum forseta. Ef forseti kemst ekki á miðstjórnarfund stýrir varaforseti fundi og ef forseti hverfur frá áður en kjörtímabilið er úti gegnir varaforseti embættinu fram að næsta þingi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þing ASÍ er æðsta vald hreyfingarinnar og á milli þinga hvílir ábyrgðin hjá miðstjórn sem fundar hálfs mánaðarlega eða eftir atvikum hjá formannafundum, sem eru haldnir árið sem ekki er þingað og oftar ef þurfa þykir.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR.

Í gegnum söguna hefur einn varaforseti dugað sambandinu ágætlega en sem viðleitni til að leysa úr ágreiningi um titla og völd hefur þeim verið fjölgað og hafa sl. sex ár verið þrír. Hugmyndin með því var að þeir kæmu frá ólíkum starfsgreinum (verslunarfólk, verkafólk, iðnaðarmenn) og mynduðu einhvers konar forsetateymi sem fundaði sérstaklega og legði línurnar.

En lögum ASÍ samkvæmt á ábyrgðin á daglegu starfi sambandsins heima í miðstjórn, ekki í litlu teymi varaforseta. Í miðstjórn koma saman fulltrúar allra landssambandanna sem mynda ASÍ og félaga með beina aðild. Þess vegna er ótrúlega undarlegt að lesa samsæriskenningar um að fækkun varaforseta gæti leitt til þess að sjónarmið einhverra hópa innan ASÍ verði jaðarsett. Þvert á móti þá er hugmyndin um lítið forsetateymi ólýðræðisleg og til þess fallin að fækka þeim röddum sem nauðsynlegt er að hafi áhrif á alla stefnumótun og daglegan rekstur ASÍ. Að vísu hefur röddum verkafólks fækkað innan miðstjórnar eftir að Efling gekk úr SGS, en svo virðist sem félagið þiggi eingöngu eitt sæti af tveimur mögulegum við borðið og leggur ekki til neina varamenn. Hvers vegna svo er veit ég ekki.

Heildarkostnaður af launum varaforseta er jafnframt fjármagn sem mætti vel verja til annarra verkefna, en til samanburðar er verið að leggja til hækkun skatta á aðildarfélögin til að standa undir eflingu vinnustaðaeftirlits. Sú hækkun gæti verið helmingi minni ef varaforsetum væri fækkað. Starf varaforseta felst að stofninum til í því að mæta á tvo Teams fundi í mánuði og fara yfir dagskrá miðstjórnar áður en hún er send út. Fundirnir taka iðulega um fimmtán mínútur en fyrir starfið eru engu að síður greiddar í ríflega 240 þúsund krónur á mánuði. (Hjá VR hefur stjórn tekið ákvörðun um að slíkar greiðslur skuli teljast hluti af launakjörum formanns og eru dregnar frá heildarlaunum).

Þá mun ég draga
framboð mitt til baka.

Þing ASÍ hefst á morgun og á fimmtudag verða greidd atkvæði um lagabreytingartillögur, þar á meðal þá tillögu miðstjórnar ASÍ sem lýtur að því að fækka varaforsetum úr þremur í einn. Á föstudag er síðan kosið um forseta og 1–3 varaforseta, eftir atvikum. Þingið þarf fyrst og fremst að kjósa varaforseta sem fólk treystir fyrir hlutverkinu, það er að segja að gegna í forföllum forseta. Þetta er ekki staða sem á að veita einhver völd eða áhrif umfram einmitt það kjarnahlutverk.

Hvað sjálfa mig varðar þá hef ég gefið kost á mér til embættis fyrsta varaforseta en það fer hins vegar allt eftir afdrifum lagabreytinga um fjölda varaforseta og niðurstöðu í kosningu til forseta hvort ég læt slag standa í þeim efnum. Ég er til dæmis þeirrar skoðunar að komi forseti úr röðum VR-inga, líkt og annar frambjóðandinn gerir, og tillaga um einn varaforseta verður samþykkt sé betra að viðkomandi komi úr röðum annarra hópa sambandsins. Þá mun ég draga framboð mitt til baka.

Allt ræðst þetta á þinginu sem hefst á morgun. Lagabreytingar og forsetakjör eru aðeins einn afmarkaður hluti þingsins. Mun áhugaverðari er stefnumótunin þar sem tæplega þrjú hundruð fulltrúar launafólks alls staðar af landinu koma saman til að ræða framtíð vinnu og verkalýðsmála. Hvort sem litið er til harkhagkerfisins eða gervigreindar, niðurbrots á stéttarfélögum eða peningastefnu sem er fjandsamleg launafólki, þá er ljóst að áskoranirnar eru yfirþyrmandi og við þurfum á öllu okkar að halda til að mæta þeim.

Við í VR mætum til leiks með virðingu og gleði í farteskinu og hlökkum til að móta framtíðina með öllu því frábæra fólki sem starfar innan ASÍ. Vonandi ber þingið gæfu til að halda sjónum á málefnunum, því þau eru sameinandi og skipta launafólk í grunninn meira máli en þref um stjórnskipulag ASÍ.“

Greinina birti Halla á eigin Facebooksíðu sinni.

Fyrirsögnin er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: