Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

„3,1 milljarðs skattahækkun á allt launafólk – Já, hér er svo sannarlega engin skattahræðsla!
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að hætta með þann 1% framleiðniþátt sem hefur bæst við árlega hækkun persónuafsláttar og skattþrepa. Þetta kann að hljóma eins og einhver tæknileg breyting, en fyrir launafólk er niðurstaðan einföld: þetta er skattahækkun. Enda kemur fram í fjárlagafrumvarpinu sjálfu að þessi breyting muni skila ríkissjóði 3,1 milljarði króna í auknar skatttekjur af launafólki.
Ef við gefum okkur að persónuafsláttur og skattþrep hækki um 5,2% þá hefðu þau hækkað um 6,2% ef 1% framleiðniþátturinn héldi sér. Persónuafslátturinn einn verður þá um 725 krónum lægri á mánuði, sem þýðir um 8.700 krónum meiri skatt á ári fyrir hvern launamann sem fullnýtir persónuafsláttinn.
En þetta stoppar ekki þar. Skattþrepin hækka líka minna og því færist hluti launanna fyrr yfir í hærri skattþrep. Þegar tekjur eru komnar yfir fyrsta þrepamarkið bætast við um 3.900 krónur í skatt á ári, þannig að skattahækkunin verður um 12.600 krónur á ári. Þegar tekjur fara yfir næstu þrepamörk geta bæst við um 13.900 krónur til viðbótar, þannig að skattahækkunin getur orðið um 26.500 krónur á ári.
Þetta er því ekki mín túlkun á því hvort skattar séu að hækka. Ríkissjóður áætlar sjálfur að fá 3,1 milljarði króna meira í kassann vegna þessarar breytingar. Þeir 3,1 milljarður koma ekki úr lausu lofti – þeir koma úr vösum launafólks.
Persónuafslátturinn verður lægri en ella, skattþrepin verða lægri en ella og skattgreiðslan verður hærri.
Það heitir einfaldlega skattahækkun á allt launafólk.“