- Advertisement -

Skattleggjum okkur ekki út úr vandanum – þurfum að skapa okkur út úr honum

Þetta eru að mínu mati stórfelldar og íþyngjandi skatta- og gjaldahækkanir á heimili og atvinnulíf.

Vilhjálmur Birgisson, form. Starfsgreinasambandsins, skrifar:

„Það verður æ skýrara að ríkisstjórnin virðist hafna þeirri hugmynd að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf, verslun og þjónusta taki höndum saman um að tryggja að gjaldskrár og verð á vöru og þjónustu hækki ekki um meira en 2,5% – verðbólgumarkmið Seðlabankans – það sem eftir lifir kjarasamninganna.

Markmiðið með slíkri þjóðarsátt er einfalt: Að ná verðbólgunni niður, lækka vexti og tryggja að forsendur kjarasamninganna haldi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og þar liggur
annað stórt
áhyggjuefni.

En hvað gerir ríkisstjórnin?

Hún leggur fram fjárlagafrumvarp þar sem krónutölugjöld eiga almennt að hækka um 5,2%, kílómetragjaldið um tæp 16% og boðaðar eru nýjar tekjuráðstafanir upp á 22,6 milljarða króna.

Þetta eru að mínu mati stórfelldar og íþyngjandi skatta- og gjaldahækkanir á heimili og atvinnulíf.

Og þar liggur annað stórt áhyggjuefni.

Það er atvinnulífið sem skapar verðmætin sem standa undir velferðarsamfélaginu okkar. Það eru öflug fyrirtæki sem skapa störfin, greiða launin og mynda skatttekjurnar sem fjármagna heilbrigðiskerfið, menntakerfið og velferðarkerfið.

Við megum því ekki fara með gullgæsina út í móa og lóga henni.

Íþyngjandi skattahækkanir á fyrirtæki draga úr krafti þeirra til að fjárfesta, skapa aukin verðmæti, fjölga starfsfólki og – síðast en ekki síst – greiða fólkinu sínu góð laun.

Eina sjálfbæra leiðin út úr þessu er að stækka kökuna – ekki að hækka sífellt skattprósentuna af henni.

Við þurfum að stækka tekjupósta samfélagsins með aukinni verðmætasköpun, fjárfestingu, nýsköpun og fleiri vel launuðum störfum. Þannig aukast tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga án þess að kæfa þann kraft sem skapar tekjurnar.

Svo blasir mótsögnin við:

Það verður
ekki bæði
sleppt og haldið.

Á meðan skattar og gjöld eru hækkuð langt umfram verðbólgumarkmið eru mikilvæg tilfærslukerfi til heimilanna ekki látin fylgja með sama hætti, svo sem barnabætur.

Þetta eru ömurleg skilaboð frá ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, réttlæti og jöfnuð.

Launafólk gekkst undir hóflegar launahækkanir í þeirri trú að allir ætluðu að axla ábyrgð á því að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Við náum ekki niður verðbólgu með því að hækka opinber gjöld um 5,2% og kílómetragjaldið um tæp 16%. Og við byggjum ekki upp öflugt velferðarsamfélag með því að draga máttinn úr þeim fyrirtækjum sem skapa verðmætin.

Leiðin fram á við er skýr:

Lægri verðbólga. Lægri vextir. Hóflegar álögur. Öflug verðmætasköpun. Fleiri störf. Betri laun.

Þannig stækkum við kökuna og tryggjum að meira verði til skiptanna fyrir okkur öll.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: