Stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja – við getum þetta saman
Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, skrifar:
„Starfsgreinasamband Íslands leggur gríðarlega áherslu á að nú axli allir ábyrgð á því að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Launafólk hefur þegar lagt sitt af mörkum með hóflegum og fyrirsjáanlegum launahækkunum í langtímasamningum. Nú þurfa ríkið, sveitarfélögin, atvinnulífið, verslunin og þjónustan að gera slíkt hið sama.
Við þurfum sameiginlegt og skýrt markmið: Gjaldskrár og verðhækkanir verði ekki umfram 2,5%
Þetta snýst ekki um hagsmuni verkalýðshreyfingarinnar einnar. Þetta er eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja.
Takist okkur að ná verðbólgunni niður að 2,5% markmiði Seðlabankans, draga úr verðbólguvæntingum og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta er ávinningurinn gríðarlegur. Skuldsett heimili fá lægri greiðslubyrði, fyrirtæki lægri fjármagnskostnað og kaupmáttur launafólks styrkist.
En þetta gerist ekki af sjálfu sér.
Enginn má skjóta sér undan ábyrgð. Ekki ríkið. Ekki sveitarfélögin. Ekki atvinnulífið. Og ekki þeir sem ráða verðmyndun á íslenskum markaði.
SGS vill að við snúum vörn í sókn og gerum þetta saman. Ef allir leggja sitt af mörkum, halda aftur af hækkunum og stefna sameiginlega að 2,5% markmiðinu getum við náð niður verðbólgu og vöxtum.
Við getum þetta saman – en þá verða allir að vera með.“
