Til að ná hærra á stigatöflunni þyrftum við að fá evrópska vexti, lægra verðlag og/eða hærra launastig.
Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson, starfsmaður Eflingar, skrifaði merka grein á vef Heimildarinnar. Ekki fæst betur séð en Stefán og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tali hvort í sína áttina í þessu stóra máli.
Hér fer hluti greinar Stefáns:
Ísland er ekki með hæsta kaupmáttinn í Evrópu og Evru-þjóðirnar eru ekki allar í annarri deild, eins og fullyrt hefur verið.
„Menn hafa rætt svolítið um hversu vel Íslendingum hefur gengið í lífsgæðakapphlaupinu undanfarið, meðal annars í tengslum við ESB umræðuna. Í hita átaka hafa staðreyndir þó stundum frarið afvega og skáldskapur tekið við.
Mikið hefur borið á þessu í umræðum um kaupmátt almennings á Íslandi og í Evrópuríkjunum. Sumir segja að í Evrópu sé nær enginn hagvöxtur og laun lág eða í öllu falli lægri en á Íslandi. Þar hafi kaupmáttur ekkert batnað lengi. Aðrir halda að Ísland sé með mesta kaupmátt í heimi þrátt fyrir að verðlag hér sé það hæsta sem mælist (sjá hér) og vextir og leiga séu einnig í allra hæstu hæðum. Margar villandi staðhæfingar hafa farið á flug.
En það eru til vandaðar mælingar á kaupmætti ráðstöfunartekna á mann. Þær mælingar segja allt sem segja þarf um stöðu Íslands og annarra Evrópuþjóða í lífsgæðakapphlaupinu, hversu vel tekjur duga fyrir framfærslunni hjá meðaltekjufólki í hverju landi fyrir sig.
Hagstofur Evrópuþjóða vinna saman að gagnaöflun á þessu sviði og nota lífskjarakannanir og tekjur úr skattframtölum til að fá endanlegar niðurstöður um kaupmáttinn. Á myndinni hér að neðan má sjá niðurstöður úr árlegum mælingum á kaupmættinum frá 2014 til 2024 (heimild: Eurostat).
Sýnd er upphæð kaupmáttar á föstu verðlagi frá ári til árs í hverju landanna. Á myndinni eru einungis þær 12 þjóðir sem hafa hæsta kaupmáttinn í Evrópu og er þeim raðað eftir kaupmáttarstiginu á síðasta árinu (2024). Þetta er Meistaradeildin í kaupmáttarkeppninni.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna endurspeglar samanlögð heildarlaun og aðrar tekjur einstaklinga í viðkomandi landi, að viðbættum greiðslum úr velferðarkerfum, en að frádregnum beinum sköttum. Síðan er leiðrétt vegna mismunandi verðlags í löndunum til að tryggja sambærileika milli þeirra. Þetta er besta mælingin á efnahagslegum lífskjörum þjóða.“
Í lok greinarinnar segir svo: „Ísland er þó með ágætis kaupmátt og á alveg heima í Meistaradeild kaupmáttarkeppninnar. Til að ná hærra á stigatöflunni þyrftum við að fá evrópska vexti, lægra verðlag og/eða hærra launastig.“