Halla Gunnarsdóttir skrifar:
„Mjög gott hjá Wolt-sendlum að rísa upp í sameiningu! Wolt hefur verið til vandræða á öllum Norðurlöndunum. Fyrirtækið neitar að virða kjarasamninga og lágmarksréttindi launafólks og nú síðast sigldu kjaraviðræður við Wolt í strand í Finnlandi.
LÍV og VR hafa tekið virkan þátt í norrænu samstarfi sem gengur út á að reyna að koma böndum á það sem hefur verið þýtt sem vinna á verkvöngum (platform work). Markmiðið er að laga nýja tækni að norrænum vinnumarkaði, frekar en að fórna grundvallarréttindum launafólks til að þjóna nýrri tækni, hversu þægileg sem hún kann að vera fyrir neytendur.
Ég hvet Wolt sendla til að hafa samband við ASÍ, VR eða önnur stéttarfélög sendla.“