- Advertisement -

Dæmigerður boðskapur hægri manna

Stefán Ólafsson skrifaði:

„Mogginn vill að við Íslendingar lærum af fyrrverandi fjármálaráðherra hægri manna í Svíþjóð, Anders Borg (sbr. viðtal við hann í Mbl. í dag). Hann var áhrifamikill fjármálaráðherra í hægri stjórnum Fredriks Reinfeldts 2006 til 2014.

Þetta er maðurinn sem ber hvað mesta ábyrgð á umfangsmiklu niðurrifi sænska velferðarríkisins, aukinni einkavæðingu og auknum ójöfnuði í Svíþjóð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Boðskapur hans inn í ESB umræðuna hér á landi er sá, að lækkun vaxta sé stórhættuleg fyrir Íslendinga (gæti verið ávísun á annað hrun, segir hann!) og að laun hafi hækkað alltof mikið hér á landi. Þess vegna þurfi að „breyta vinnumarkaðsmódelinu“ (þ.e. draga úr áhrifum verkalýðshreyfingarinnar).

Þetta er auðvitað dæmigerður boðskapur hægri manna, sem stenst enga staðreyndaskoðun. En ef menn vilja rýra velferð, lækka laun almenns launafólks og bæta hag þeirra ríkustu enn meira þá fylgja þeir ráðum svona manna!“

Greinina birti Stefán á Facebook.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: