- Advertisement -

Finnbjörn forseti skýtur á bæði Ragnar Þór og Kristján Þórð

Umræðan/Viðskiptablaðið: Eitt fyrsta verk Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, var að mæla fyrir frumvarpi sínu um styttingu bótatímabils atvinnuleysisbóta. Hrafnarnir telja þetta vera þjóðþrifamál, enda kemur fram í greinargerð frumvarpsins að breytingin muni spara ríkissjóði ríflega sex milljarða króna á ári þegar áhrifin verða komin að fullu fram eftir þrjú ár, sé miðað við 3,5–4% atvinnuleysi. Það er álíka mikið og það kostar að tengja bótagreiðslur ríkisins við launavísitölu, eins og annað frumvarp Ragnars felur í sér.

En ekki eru allir hrifnir. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, skrifaði grein á Vísi þar sem hann spyr hvort launafólk á Íslandi „eigi sér enga raunverulega fulltrúa á Alþingi“ nú þegar Guðbrandur Einarsson hefur sagt af sér þingmennsku. Augljóst er að forsetinn er þarna að skjóta á sína gömlu félaga, Ragnar Þór og Kristján Þór Snæbjarnarson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi formann Rafiðnaðarsambandsins.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: