- Advertisement -

Verkafólk stóð við sitt – aðrir brugðust

Vilhjálmur Birgsson form. SGS og VLFA skrifaði:

Á meðan virðist enginn ætla að lyfta „sleggjunni“ frægu sem átti að berja niður verðbólgu og vexti.

„Nú eru nánast 100% líkur á að forsendur kjarasamninganna bresti. Verðbólgan hækkar úr 5,2% í 5,3% og nú er einungis ágústmælingin eftir. Þá má 12 mánaða verðbólga ekki vera hærri en 4,7% samkvæmt forsendum samninganna.

Það verður því æ ljósara að íslenskt verkafólk var svikið.

Verkafólk sýndi mikla ábyrgð í apríl 2024 og gekk frá afar hófstilltum langtímakjarasamningum til að skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við þurfum því sjálf að ná tökum á verðbólgu, ríkisfjármálum…

Ábyrgð stjórnvalda er gríðarleg vegna skattahækkana og aukinna álaga. Sveitarfélög hafa hækkað gjaldskrár og fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa í sumum tilfellum hækkað verðlag eins og enginn sé morgundagurinn – þrátt fyrir fyrirheit um að allir myndu leggja sitt af mörkum.

Verkafólk stóð við sitt. Allt of margir aðrir gerðu það ekki.

Það sorglega er að næstu vikurnar verða stjórnvöld, stjórnmálamenn og þjóðin upptekin af þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB. Á meðan virðist enginn ætla að lyfta „sleggjunni“ frægu sem átti að berja niður verðbólgu og vexti.

Samhliða þessu er látið í veðri vaka að ESB-aðild og evran muni leysa okkar efnahagsvanda. En niðurstöður nýju og umfangsmiklu gjaldmiðlaskýrslunnar, sem unnin var að frumkvæði fjármála- og efnahagsráðuneytisins og kom út í maí, sýna að málið er miklu flóknara en svo.

Þar kemur meðal annars fram að upptaka evru sé engin töfralausn og að Ísland þyrfti fyrst að uppfylla Maastricht-skilyrðin um efnahagslegan stöðugleika áður en upptaka evru kæmi til greina. Við þurfum því sjálf að ná tökum á verðbólgu, ríkisfjármálum og öðrum undirliggjandi efnahagsvanda.

Við göngum ekki inn í ESB og fáum evruna afhenta við dyrnar – og við getum ekki útvistað ábyrgðinni á íslenskum efnahagsmálum til Brussel eða Frankfurt.

Við þurfum sjálf að ná tökum á okkar efnahagsvanda – sama hvaða gjaldmiðil við notum.

Þess vegna er dapurlegt ef ESB-umræðan verður nú látin yfirskyggja það neyðarástand sem er að skapast vegna brostinna forsenda kjarasamninganna, áframhaldandi verðbólgu og vaxta sem eru að sliga heimili og fyrirtæki.

Þegar endanlega liggur fyrir að forsendur kjarasamninganna hafi brostið verður það íslensks verkafólks og félagsmanna stéttarfélaganna að ákveða hvernig bregðast skuli við.

Verkafólk stóð við sitt. Nú er komið að öðrum að axla ábyrgð.“

Greinin er fengin af facebooksíðu Vilhjálms.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: