- Advertisement -

Aðeins tvö fyrirtæki hafa svarað VR

Og við sitjum uppi
með alltof háa
verðbólgu og
svimandi stýrivexti.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR skrifaði:

„Nú er liðin vika síðan við í VR, LÍV og Fagfélögunum hófum bréfasendingar til stórra verðmótandi fyrirtæki um hvað þau séu tilbúin að leggja af mörkum til að draga úr verðhækkunum og vinna þannig bug á verðbólgunni. Eingöngu tvö svör hafa borist, frá SS sem ætlar að fresta verðhækkunum tímabundið og frá Kaupfélagi Skagfirðinga sem ætla ekki að láta sitt eftir liggja en gefa þó ekkert uppi um hvað þau ætla að leggja af mörkum. Það er áhugavert að skynja það að sum fyrirtæki virðast ekki telja sig bera neina sérstaka ábyrgð á þessari stöðu (á meðan önnur eru mjög meðvituð um hana). Því í raun er aðeins verið að biðja þau um að fylgja eftir skuldbindingum sínum gagnvart gildandi kjarasamningum, hér eru engar nýjar kröfur á ferðinni. Meðalhagnaður fyrirtækja hefur aukist á gildistíma kjarasamninganna, á sama tíma og þau áttu að halda aftur af verðhækkunum. Og við sitjum uppi með alltof háa verðbólgu og svimandi stýrivexti.

Ef allir eiga að sitja að árum þurfa nefnilega allir að sitja að árum, ekki bara sumir.

Sambærileg bréf hafa verið send á sveitarfélög og fyrsta svar hefur nú borist frá Árborg sem ætlar að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf. Vonandi berast fleiri góð svör, við höfum fram til 8. október til að ákveða hvort kjarasamningum verður sagt upp vegna forsendubrestsins.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: