- Advertisement -

Villi Birgis spyr – hvar er sleggjan?

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgeinasambandsins, skrifar:

„Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun um 0,25 prósentustig, úr 7,75% í 8%. Það þýðir að óverðtryggðir húsnæðislánavextir verða áfram í kringum 10,5% og skuldsett heimili fá enn einn skellinn.

Það er orðið æ ljósara að vaxtatæki Seðlabankans virkar ekki sem skyldi við íslenskar aðstæður.

Við erum með gríðarlega útbreidda verðtryggingu sem veikir miðlun stýrivaxtanna. Þegar óverðtryggðir vextir eru keyrðir upp geta heimilin flúið yfir í verðtryggð lán. Á sama tíma fóðrar verðtryggingin verðbólguna eins og enginn sé morgundagurinn, þar sem verðhækkanir færast sjálfkrafa inn í verðtryggðar skuldir og fjölmarga samninga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Allt eru þetta atriði sem við getum lagað sjálf.

Svo er það verðmyndunin.

Greining Seðlabankans á mat- og drykkjarvöru sýnir sláandi ósamhverfu:

1% veiking krónunnar → um 0,9% hækkun matvælaverðs.

1% styrking krónunnar → aðeins um 0,2% verðlækkun.

Veikingin skilar sér hratt og af miklum þunga út í verðlag en styrking krónunnar skilar sér aðeins að litlu leyti til neytenda.

Og hvað gerum við? Hækkum vextina enn eina ferðina og sendum reikninginn á skuldsett heimili!

Þessi ákvörðun mun heldur ekki auðvelda stéttarfélögunum og Samtökum atvinnulífsins að komast að niðurstöðu þegar taka þarf afstöðu til forsendubrests kjarasamninganna.

En það mikilvægasta er þetta:

Allt eru þetta atriði sem við getum lagað sjálf.

Við getum tekið á verðtryggingunni, vaxtamynduninni, peningastefnunni og því að styrking krónunnar skili sér til neytenda. Við höfum ákvörðunarvaldið til þess.

Við þurfum ekkert ESB til að gera þetta.

Þess vegna spyr ég einfaldlega:

HVAR ER SLEGGJAN?

Hvar er sleggjan sem átti að brjóta niður verðbólguna og háu vextina?

Eða er kannski búið að pakka henni niður og senda hana til Brussel?

Við þurfum ekki að bíða eftir Brussel til að laga það sem við höfum fullt vald til að laga sjálf.

Það sem vantar er ekki vald. Það sem vantar er vilji til að nota það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: