Talið við fólkið sem hefur umboðið. Leggið raunverulegar aðgerðir á borðið. Hættið fagurgalanum.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgeinasambandsins, skrifaði:
„HELBER ÓSANNINDI UM SAMRÁÐ VIÐ VERKALÝÐSHREYFINGUNA
Fólkið sem gerði kjarasamningana og fer með samningsumboðið – VIÐ ÞAÐ ER NÁNAST EKKERT TALAÐ!
Þetta er staðreyndin þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi í allt sumar talað um gríðarlegt samráð, mikla vinnu og að unnið sé hörðum höndum að lausn vegna forsendubrests kjarasamninganna.
Samráð við hvern?
Ég kannast ekki við þetta samráð þegar kemur að þeim atriðum sem raunverulega skipta máli til að liðka fyrir lausn vegna forsendubrests. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur einnig talað skýrt um þetta samráðsleysi stjórnvalda á öllum sviðum.
Forsætisráðherra
sagði meira að segja…
Og þá spyr ég:
Hvernig geta stjórnvöld haldið því fram að hér sitji ríkisstjórn sem vinni „þétt með verkalýðshreyfingunni“ þegar forystufólk stærstu félaga verkafólks kannast vart við þetta svokallaða samráð?
Að halda slíku fram við þessar aðstæður eru að mínu mati helber ósannindi.
Forsætisráðherra sagði meira að segja fyrir örfáum dögum að hún ætlaði að kynna aðgerðir á fundi Þjóðhagsráðs í gær til að liðka fyrir því að kjarasamningum yrði ekki sagt upp.
Í fyrsta lagi hefur Þjóðhagsráð ekkert samningsumboð né ákvörðunarvald. Það er samráðsvettvangur – ekki samninganefnd.
En svo kom dagurinn og engar slíkar aðgerðir voru lagðar fram.
Hvað hefur þá verið gert í allt sumar?
Við höfum hlustað á yfirlýsingar um gríðarlega vinnu, víðtækt samráð og að lausnir séu handan við hornið.
Nú er komið að skuldadögum – og ekkert gerist.
Forsendur kjarasamninga eru brostnar og tíminn er að renna út. Samt er nánast ekkert rætt við fólkið sem gerði kjarasamningana og fer með umboð félagsmanna sinna.
Vinnandi fólk á
betra skilið en
þessa framkomu.
Ég hef starfað í verkalýðshreyfingunni í 22 ár og hef aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum í jafn alvarlegu kjaramáli.
Þetta er ekki samráð. Þetta er sýndarmennska.
Og ef ríkisstjórnin ætlar áfram að kalla sig ríkisstjórn sem vinnur þétt með verkalýðshreyfingunni þá verður hún að fara að sýna það í verki.
Talið við fólkið sem hefur umboðið. Leggið raunverulegar aðgerðir á borðið. Hættið fagurgalanum.
Vinnandi fólk á betra skilið en þessa framkomu.“
Greinina birti Vilhjálmur fyrst á Facebook.