Efnahagsmál:
Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
„Ný verðbólgumæling sýnir svo ekki verður um villst hversu mikið er í húfi fyrir íslenskt samfélag.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% í september og ársverðbólgan mælist nú 5,9%. Hagstofan birti septembermælinguna í morgun.
Við höfum tekið saman verðtryggðar skuldir heimila, fyrirtækja, ríkissjóðs og sveitarfélaga. Miðað við þær tölur og forsendur sem við höfum undir höndum nemur þessi verðtryggði skuldastofn um 4.395 milljörðum króna.
Og þá blasir alvaran við.

Enginn má
skjóta sér
undan henni.
0,39% hækkun vísitölunnar í september ein og sér samsvarar rúmlega 17 milljarða króna hækkun á þessum verðtryggða skuldastofni. Þar af eru tæpir 9 milljarðar vegna verðtryggðra skulda heimilanna einna.
Þetta sýnir hversu gríðarlega mikilvægt það er að okkur takist að ná fram þjóðarsátt um að keyra niður verðbólgu og vexti.
Það er einfaldlega ekki nóg að launafólk og verkalýðshreyfingin standi við sitt á meðan aðrir hækka verð og gjaldskrár eins og ekkert hafi í skorist. Ef þetta á að takast verða allir að koma að borðinu.
Ríkið, sveitarfélögin, atvinnulífið, verslun og þjónusta verða öll að axla sína ábyrgð. Enginn má skjóta sér undan henni.
Og ávinningurinn getur verið gríðarlegur.
Miðað við þennan sama verðtryggða skuldastofn upp á 4.395 milljarða samsvarar 5,9% verðbólga um 259,3 milljörðum króna í verðbætur á ársgrundvelli.
Ef verðbólgan væri hins vegar 3,5% væri samsvarandi fjárhæð um 153,8 milljarðar króna.
Munurinn er 105,5 milljarðar króna á ársgrundvelli.
Það er reikningslegur ávinningur upp á 105,5 milljarða í minni verðbætur á þessum skuldastofni ef verðbólgan væri 3,5% í stað 5,9%.
Og þá er mögulegur ávinningur af lægri vöxtum ekki einu sinni talinn með.
Þetta er ástæðan fyrir því að þjóðarsátt um að ná niður verðbólgu og vöxtum skiptir svo gríðarlega miklu máli.
Allir verða að axla ábyrgð. Allir, og þá meina ég allir. Enginn má skjóta sér undan henni og ætlast til þess að launafólk eitt og sér beri ábyrgðina.
Það eru einfaldlega allt of miklir sameiginlegir hagsmunir undir.“