Vill stórútgerðin ekki taka þátt í að tryggja verðlagsstöðugleika fyrir íslensk heimili?
Dýrtíð:
Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
„Fiskverð til íslenskra neytenda hefur hækkað um 234% meira en matvælaverð almennt skv. gögnum Hagstofunnar.
Verð á fiski og öðru sjávarfangi hér á landi hefur hækkað um 13,7% á síðustu tólf mánuðum, á meðan matur í heild hefur hækkað um 4,1%. Hækkunin á sjávarafurðum er því rúmlega þreföld — eða 234% meiri en hækkun matvælaverðs almennt.
Þetta var meðal þess sem ég tók fyrir á fundi okkar í breiðfylkingunni með Samtökum atvinnulífsins í gær. Breiðfylkinguna skipa Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn. Fundurinn var haldinn samkvæmt samkomulaginu um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga, þar sem kveðið er á um mánaðarlega fundi til að rýna meðal annars í verðbólgutölur og þróun verðlags.
Tölurnar um sjávarafurðir eru sláandi.
Frá október 2025 til október 2026 hefur verð til neytenda á:
- Fiski og öðru sjávarfangi hækkað um 13,7%.
- Kjöti hækkað um 5,0%.
- Mjólk, mjólkurvörum og eggjum hækkað um 4,7%.
- Ávöxtum og hnetum hækkað um 5,8%.
- Grænmetisflokknum hækkað um 4,3%.
Íslenska þjóðin á
sjávarauðlindina.
Hækkunin nær yfir alla fjóra undirliði sjávarafurða. Þurrkaður, saltaður, pæklaður eða reyktur fiskur hefur hækkað um 18,9%, annað ferskt eða frosið sjávarfang um 14,5%, ferskur og frosinn fiskur um 11,9% og fiskafurðir um 11,1%.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér liggja hækkanirnar hjá útgerðinni fremur en milliliðum eða verslunum. Þess vegna beini ég gagnrýni minni sérstaklega að henni.
Íslenska þjóðin á sjávarauðlindina. Þeir sem njóta aðgangs að henni bera samfélagslega ábyrgð gagnvart þjóðinni.
Enginn er að tala um að gefa sjávarafurðir. Krafan er að íslenskar fjölskyldur geti keypt þessa hollu og góðu matvöru á viðráðanlegum kjörum. Fiskur á ekki að verða munaðarvara sem eingöngu er á færi hinna efnameiri.
Vill stórútgerðin ekki taka þátt í að tryggja verðlagsstöðugleika fyrir íslensk heimili?
Ég tel mikilvægt að stórútgerðin sendi skýr skilaboð og skuldbindi sig til að hækka verð á sjávarafurðum sem fara á íslenska neytendamarkaðinn um að hámarki 2,5% á árinu 2027. Innanlandsmarkaðurinn tekur aðeins lítinn hluta heildarmagnsins sem fyrirtækin selja. Það hlýtur að vera svigrúm til að sýna eigendum auðlindarinnar þessa ábyrgð.
Þar sem kostnaður lækkar á ávinningurinn jafnframt að skila sér áfram. 2,5% er hámark, ekki sjálfvirk heimild til hækkunar.
Það dugar ekki að velja eina vöru og lofa óbreyttu verði á henni. Ábyrgðin verður að ná yfir sjávarafurðirnar sem seldar eru íslenskum heimilum.
Launafólk hefur lagt sitt af mörkum með kjarasamningum sem miða að því að ná niður verðbólgu og vöxtum. Nú verður stórútgerðin að sýna í verki að hún ætli að taka þátt líka. Það er morgunljóst að þjóðin á rétt á því að þeir sem nýta sameiginlega auðlind hennar axli samfélagslega ábyrgð.