- Advertisement -

Borgin var og er í okkar höndum

Leiðréttum sögulega vanmetin kvennastörf.

Sólveig Anna Jónsdóttir.

Umræðan/Facebook: Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði:

Afhverju talar nýr oddviti Samfylkingarinnar aðeins um leikskólakennara þegar hann ræðir vandamál leikskólanna – minnist ekki einu orði á almennt starfsfólk, Eflingarfólkið, mest konur, sem þó er meirihluti þeirra sem vinna á leikskólum borgarinnar? Í viðtali á Samstöðinni á mánudag segir hann að samfélagið myndi lamast ef að leikskólakennarar færu í verkfall. Já, allt myndi lamast en aðeins ef Eflingarfólk færi í samúðarverkfall með kennurunum. Ég minni á það sem Samfylkingarfólk í borginni og fleiri vilja eflaust gleyma eða eru búin að gleyma, eins og oddvitinn virðist hafa gert: Snemma árs 2020 fór Eflingarfólk í Reykjavíkurborg í margra vikna verkföll til að berjast fyrir hærri launum og betri aðstæðum. Slagorð okkar tvö: Borgin er í okkar höndum og Leiðréttum sögulega vanmetin kvennastörf. Mig minnir að meðan á verkföllunum stóð hafi allir borgarreknir leikskólar lokað – slík voru áhrif þess að Eflingarfólk lagði niður störf. Borgin var og er, sannarlega í okkar höndum. Skynsamt fólk myndi eflaust gæta þess að láta ekki eins og við séum ekki til – m.a. í ljósi þess að þegar við setjum hendurnar í vasana og neitum að vinna verður samstundis afskaplega erfitt að láta eins og við skiptum engu máli. Það er ekki gáfulegt að tala hvorki við okkur né um okkur.

Við í Eflingu er þreytt á ýmsu – en sennilega þreyttust á því að fólk láti eins og við séum ekki til. Eflingarfólk er bókstaflega ómissandi, knýr áfram alla verðmætasköpun samfélagsins og heldur fjársveltum umönnunarkerfum gangandi með vinnu sinni. Það væri óskandi að menn gætu viðurkennt þá staðreynd hátt og snjallt.

Læt fylgja opið bréf Eflingarfólks til þáverandi borgarstjóra frá verkfallsvetrinum 2020:


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: