- Advertisement -

Ófarir í kjölfar sigurs

Nú árið 2026 er leyfilegur heildarafli á þorski rétt rúmlega 200 þúsund tonn, en árið 1976 var heildarveiðin á þorski um 70% meiri eða 350 þúsund tonn. Það sem kom í hlut Íslendinga af þeim afla fyrir 50 árum var um 280 þús tonn eða 40% meiri þorskafli en Íslendingar veiða nú.

Sigurjón Þórðarson.

Umræðan: Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Í dag er liðin hálf öld frá því að Ísland náði fullum yfirráðum yfir fiskveiðilögsögunni. Það er ekki úr vegi að fara yfir hvað þessi sigur hefur fært landsmönnum.

Nú árið 2026 er leyfilegur heildarafli á þorski rétt rúmlega 200 þúsund tonn, en árið 1976 var heildarveiðin á þorski um 70% meiri eða 350 þúsund tonn. Það sem kom í hlut Íslendinga af þeim afla fyrir 50 árum var um 280 þús tonn eða 40% meiri þorskafli en Íslendingar veiða nú.

Fyrir utan gríðarlegan aflasamdrátt frá árinu 1976 þá er nú mun minna frelsi og jafnræði fyrir Íslendinga að draga bein úr sjó, en áður en íslensk stjórnvöld náðu fullum yfirráðum yfir lögsögunni. Sjávarbyggðir á borð við Grímsey hafa að mestu misst rétt til að nýta nálæg fiskimið. Það væri góður bragur á því í tilefni tímamótanna að veita Grímsey og sjávarbyggðunum skýran rétt til þess að nýta nálæg fiskimið með vistvænum veiðarfærum.

Tímamótin og framangreindar staðreyndir ættu að vera tilefni til þess að fara yfir bæði fiskveiðiráðgjöfina og það ójafnræði sem ríkir nú við nýtingu auðlindarinnar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: