Stjórnmál: Mörg okkar hafa velt vöngum yfri því sem er að gerast innan Flokks fólksins. Einkum og sér í lagi brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar, bæði úr flokknum sjálfum sem og þingflokknum. Trúlegast er Ingu Sæland, formanni og ráðherra, um að kenna.
Ég las alveg skínandi góða grein eftir Jón Viðar Jónsson. Hann skrifaði;
„Varðandi þetta havarí kringum Guðmund Inga Kristinsson í Flokki fólksins:
Skipan hans í embætti menntamálaráðherra var auðvitað klaufaleg redding eftir skyndilegt brotthvarf Ásthildar Lóu úr ráðuneytinu. En langbest er að segja það eins og er: Guðmundur var einfaldlega ekki vandanum vaxinn; það kom í ljós nánast á fyrsta degi og ástæðulaust að rifja upp hér. En vitaskuld var það Inga Sæland sem klúðraði málinu og var þó ekki bætandi á það sem þegar var komið. Ekki er að efa að hin alræmda skrípadeild Morgunblaðsins sem vill flokkinn feigan (og auðv ríkisstjórnina alla) mun nú stökkva á þetta og gera sér góða máltíð úr. Fylgi flokksins mun halda áfram að dala í skoðanakönnunum sem er slæmt því að þetta er flokkur sem á sannarlega erindi í stjórn landsins eftir langvarandi óstjórn og valdníðslu þeirra sem þar sátu á fleti fyrir.
Ég hef aldrei verið í neinum stjórnmálaflokki um dagana, veit ekkert hvað gerist innanbúðar í Flokki fólksins og varðar í sjálfu sér ekkert um það. En staðreyndir tala sínu máli: Inga Sæland er ekki aðeins reynslulítill stjórnmálamaður, heldur virðist hún afar einráð og skorta hæfa ráðgjafa. Nú síðast gerði hún sig að almennu athlægi með hinni stórfurðulegu páskaeggjauppákomu. Hún er prímadonna sem lítur á flokkinn nánast sem eign sína og nýtur þess að uppskera aðdáun í fjölmiðlum. Velgengnin hefur stigið henni illa til höfuðs og afleiðingarnar blasa við: það fólk sem kaus flokkinn í síðustu kosningum hefur misst á honum traust.
Stundum gerist það í pólitík að forystumaður verður að velja á milli þess sem að honum snýr persónulega og þess sem kemur flokknum og baráttumálum hans best. Í ljósi ítrekaðra mistaka Ingu Sæland fæ ekki betur séð en sú stund nálgist óðfluga í Flokki fólksins. Við skulum vona að formaður flokksins eigi spegil sem segi henni sannleikann ef hún spyr: „Spegill, spegill … hermdu mér … “
Grein Jóns Viðars er fengin af Facebook.