- Advertisement -

Hvað er málþóf í raun?

Stemningin í þingsal þyngist með hverjum klukkutíma, orðræðan harðnar og trúnaðurinn minnkar.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

Stjórnmál: „Málþóf er misnotkun á þingsköpum til að koma í veg fyrir að meirihluti þingmanna nái fram stefnu sinni í atkvæðagreiðslu. Löglegt en siðlaust, sem ég trúi að fleiri taki undir,“ skrifaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, í nýrri Moggagrein:

„Þeir sem standa í málþófi segja gjarnan að málþóf sé eina tækið sem stjórnarandstaðan hafi til að gæta hagsmuna kjósenda þeirra gegn meirihlutavaldi. Þetta er að hluta til rétt.

Minnihlutinn á rétt á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri bæði í störfum nefnda Alþingis og í ræðustól og í lýðræðisríki skiptir málfrelsi höfuðmáli. En þegar þingmenn flytja innihaldslega og jafnvel bókstaflega sömu ræðurnar aftur og aftur án þess að nokkuð nýtt sé lagt til málanna er ekki lengur um lýðræðislega umræðu að ræða. Þá er um tálmun gegn lýðræðinu að ræða.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Greinarhöfundur:
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

Kostnaðurinn sem enginn talar um

Málþóf kostar peninga og þeir peningar koma úr vösum okkar allra. Þetta er staðreynd sem er alltof sjaldan gerð skil í umfjöllun. Á vefsíðu sem sett var upp árið 2025, malthof.is, var tekinn saman kostnaður Alþingis á málþófi. Mörgum var brugðið við að sjá þær stóru upphæðir sem þar brunnu upp.

Málþóf drepur niður alla stemningu

Alþingi er vinnustaður þar sem fjöldi fólks starfar. Þegar þingið er fast í málþófi vikum saman bitnar það á öllum sem þar starfa. Málþóf reynir á þingmenn og starfsfólk. Það skapar óvissu og jafnvel kvíða hjá sumum, og vonbrigði yfir því að fjölda mála skuli daga uppi vegna tafaleikja þeirra sem standa fyrir málþófinu. Þetta eru skemmdarverk.

Stemningin í þingsal þyngist með hverjum klukkutíma, orðræðan harðnar og trúnaðurinn minnkar. Málþóf á Alþingi er óþarfa böl. Það er ekki einfalt böl og það hefur margar hliðar. En við þurfum að tala um hvernig þingið getur lagað þingsköp sín þannig að minnihlutinn hafi raunveruleg og skilvirkari tæki til að gæta hagsmuna kjósenda sinna, án þess að stöðva starfsemi Alþingis í heild.

Það er hægt. Vilji er allt sem þarf.

Fyrirsögn og myndaval er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: