- Advertisement -

Valdalaus á ráðherralaunum

„Sjálfstæðismenn dreymir um að komast til valda í Reykjavík eins og tíðkaðist oft á síðustu öld. Sá draumur virðist vera mjög fjarlægur en engu að síður virðast ýmsir vilja taka að sér að leiða lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum eftir átta mánuði. Flokkurinn á nú mikið safn af einnota leiðtogum í Reykjavík síðasta aldarþriðjunginn, allt frá því að Davíð Oddsson lét af starfi borgarstjóra eftir níu ára valdaferil. Þessir einnota leiðtogar eru Markús Örn Antonsson, Árni Sigfússon, Björn Bjarnason, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Halldór Halldórsson, Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sem sækist eftir endurkjöri sem leiðtogi. Hún vill ekki vera einnota eins og hinir,“ segir í Orðið á götunni á DV.

„Fyrir störf í borgarstjórn er nú farið að greiða vel, allt upp í ráðherralaun, jafnvel þó um sé að ræða fólk í valdalausum minnihluta eins og hefur verið hlutskipti Sjálfstæðisflokksins um árabil. Sem dæmi um það má nefna að samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar vegna tekna ársins 2024 var Hildur Björnsdóttir með 2,1 milljón í laun á mánuði og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi flokksins, með 2,3 milljónir á mánuði. Frá þeim tíma hafa laun hækkað. Fólk vill umfram allt verja slík laun sem slaga upp í starfskjör ráðherra,“ segir einnig þar.

Nú er hlaupið yfir nokkra kafla í greininni og komið niður þar sem segir:

„Svo stendur Sjálfstæðisflokkurinn frammi fyrir þeirri stóru spurningu hver ætti að vilja mynda meirihluta með honum í borginni næsta vor, jafnvel þótt hann næði þokkalegum árangri? Væntanlega nær Framsóknarflokkurinn engum borgarfulltrúa kjörnum en Miðflokkurinn gæti náð einhverju fylgi. Væntanlega er ekki öðrum hugsanlegum samstarfsaðilum til að dreifa.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Orðið á götunni er að Guðlaugur Þór Þórðarson sé of reyndur og klókur til að tefla sér fram í slíkan slag. Aðrir flokksmenn hafa ekki bakland þannig að Hildur Björnsdóttir mun leiða listann að nýju. Hún mun reyna allt sem unnt er til að hrista út af listanum nokkra núverandi fulltrúa og tefla fram yngra fólki en sjálf er hún á góðum aldri, 39 ára.

Hlutskipti Hildar verður áfram að vera oddviti stjórnarandstöðunnar í borginni – valdalaus á ráðherralaunum.“

Þannig er nú það.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: