Það er þess vegna ansi hlægilegt þegar formaður Samfylkingarinnar ætlar að kenna Fjarðabyggð lexíu í leikskólamálum.
Jens Garðar Helgason.
Kosningar: Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar:
„Það eru sérstök skilaboð þegar forsætisráðherra kemur í heimsókn til Fjarðabyggðar og kýs að nýta tækifærið í pólitískan áróður fyrir sveitarstjórnakosningar. Það hefði verið nær að tala upp samfélagið, atvinnulífið og fólkið sem hér býr. Að blása sóknarhug í bæjarbúa og landsmenn.
Í staðinn er ráðist á leikskólakerfið í Fjarðabyggð. Það er ekki fullkomið en stendur mjög vel samanborið við flest sveitarfélög. Í Fjarðabyggð fá 12 mánaða börn nefnilega leikskólapláss, nokkuð sem foreldra í Reykjavík og öðrum Samfylkingarsveitarfélögum dreymir um. Í Reykjavík eru gjöldin hærri og skráningardagarnir kosta umtalsvert meira. Það er þess vegna ansi hlægilegt þegar formaður Samfylkingarinnar ætlar að kenna Fjarðabyggð lexíu í leikskólamálum.
Segir meira um stöðu Samfylkingarinnar en Fjarðabyggðar.
Það sama gildir um öldrunarmálin. Kristrún talar um stórsókn á sama tíma og ríkisstjórnin er að loka hjúkrunardeildinni í Neskaupstað, án samtalsins og samráðsins sem henni er svo tíðrætt um. Þetta eru ekki beint skilaboð um öryggi á efri árum.
Fjarðabyggð hefur sýnt ábyrgð, m.a. með því að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna og létta undir með heimilum. Til þess þarf engar sleggjur, JYSK-fundi eða uppstilltar myndatökur. Bara aðgerðir.
Það hefði verið ánægjulegt að sjá forsætisráðherrann ræða stóru málin í Fjarðabyggð. En þegar landsmálaforystan mætir í heimsókn og fer beint í sveitarstjórnarslaginn segir það kannski meira um stöðu Samfylkingarinnar en stöðu Fjarðabyggðar…“
Kristrún Frostadóttir skrifaði hins vegar þetta:
Í Fjarðabyggð er kosið um daglega lífið
„Ég talaði við þriggja barna móður á Reyðarfirði sem finnur fyrir hærri gjöldum og skertri þjónustu undir Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Hún borgar það sama núna fyrir eitt barn á leikskóla eins og hún borgaði fyrir tvö börn áður. Með Samfylkingu snúum við þessari þróun við og lækkum kostnað barnafólks.
…ætlum við að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum.
Ég ræddi líka við eldri borgara sem vilja búa við öryggi á efri árum. Í ríkisstjórn hófum við stórfellda uppbyggingu hjúkrunarheimila og festum lífeyri við laun. Með Samfylkingu í sveitarstjórnum ætlum við að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum.
Um leið höldum við áfram að einfalda regluverk, efla samgöngur og styrkja orkuinnviði. Til að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun um land allt.
Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru.
16. maí verður kosið um pólitíska stefnu og hvernig samfélag við viljum á Ísland. Samfylking er í sókn um land allt. Með nýtt fólk og nýja kynslóð í forystu – eins og Stefán Þór oddvita í Fjarðabyggð. Og ég vil hvetja ykkur til að leggja okkur lið á lokasprettinum og kjósa Samfylkingu til sigurs 16. maí.“