- Advertisement -

Er borgarlínan helst fyrir hjólreiðafólk?

Kolbrún Baldursdóttir:
Verður borgarlínan bara fyrir hjólreiðafólk?

Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, sér ekki, eftir að hafa lesið sér til, að borgarlínan sé einkum hönnuð fyrir fólk sem fer um á reiðhjólum sem og gangandi vegfarendur. „Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum svo bíleigendur geti nýtt sér borgarlínuna,“ segir Kolbrún.

„Nú stendur til að hefja fyrstu áætlun um byggingu borgarlínu um Reykjavík og yfir í Kópavog. Flokkur fólksins er í sjálfum sér ekki á móti borgarlínu, en lýsir efasemdum um ágæti hennar vegna ört vaxandi tæknibreytinga sem gætu gert borgalínuna óþarfa þá loks hún verður tilbúin, því er beint þeim tilmælum að aðrir og ódýrar samgöngukostir verði skoðaðir af borginni en þessi rándýra framkvæmd,“ segir Kolbrún og kemur svo með merka spurningu:

Verður borgarlínan bara fyrir hjólreiðafólk?

Hún segir að gert sé ráð fyrir minni umferð bíla en ekki sé gert ráð fyrir bílastæðum nærri borgarlínunni:

„Gert er ráð fyrir að við stöðvar borgarlínu verði hjólastæði fyrir hjólreiðamenn sem vilja nýta borgarlínuna. Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum svo bíleigendur geti nýtt sér borgarlínuna. Hvers vegna á ekki einmitt að höfða til þeirra sem vilja nota einkabílinn nánast í allar sínar ferðir? Það er alþekkt erlendis að við endastöðvar almenningslesta eru bílastæði fyrir bifreiðareigendur svo þeir sleppi að aka alla leið til vinnu, heldur nýti sér almennings samgöngur líkt og aðrir. Hvað varðar kolefnisjöfnuð þá má gera ráð fyrir að meirihluti bílaflotans verð knúinn vistvænni orku 2040. Verður því fækkun einkabílsins eins mikil og til er ætlast?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: