- Advertisement -

„Fréttastofa RÚV hefur á einhvern óskiljanlegan hátt fengið þá ímynd að vera traust fréttastofa“

Gríðarlega mikið hefur verið fjallað um starfslok Eggerts Þór Kristófessonar forstjóra hjá Festi, enda komu fréttirnar af því að hann væri hættur flestum verulega á óvart – því mörgum hefur þótt Eggert standa sig vel í starfi.

Eggert Þór Kristófersson

Komið hefur í ljós að starfslokin voru ekki að hans ósk, en ýmsir fjölmiðlar hafa tengt starfslok Eggerts við Vítalíu-málið svonefnda; en Vítalía Lazareva vakti mikla athygli snemma árs, er hún fór í viðtal við Eddu Falak; lýsti þar hvernig fjórir menn hefðu farið yfir öll mörk hennar kynferðislega í sumarbústaðarferð haustið 2020. 

Edda Falak, Arnar Grant og Vítalía Lazareva.
Þú gætir haft áhuga á þessum

Einn af fjórmenningunum sem Vítalía ásakaði um brot í sumarbústaðarferðinni er Þórður Már Jóhannesson, stjórnarformaður Festi. Víða hefur verið látið að því liggja að Eggert hafi verið látinn fara vegna stuðnings síns við Vítalíu, en hins vegar telur stjórn Festis að starfslok Eggerts séu alls ótengd Vítalíu-málinu.

Þórður Már Jóhannesson.

Að auki hefur fyrrverandi ástmaður Vítalíu, líkamsræktarfrömuðurinn Arnar Grant, sagt frá því að hann muni bera vitni ef til dómsmáls kemur vegna þessa máls; þar muni Arnar vitna um að lýsingar Vítalíu á brotunum séu réttar.

Nú í framhaldi af þessum tíðindum hefur lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson skrifað pistil um Vítalíu-málið og beinir sérstaklega spjótum sínum að fréttastofu RÚV:

„Fréttastofa RÚV hefur á einhver óskiljanlegan hátt fengið þá ímynd að vera traust fréttastofa; segja fréttir sem byggjast á gildum heimildum viðurkenndrar blaða- og fréttamennsku. Svo er alls ekki,“ segir Sigurður og bætir við:

„Þar skiptir sannleikurinn litlu falli hann ekki að sögunni sem segja á. Þess vegna er ekki haft fyrir því að skoða báðar hliðar mála, ef koma má höggi á þá eða þær manneskjur sem taldar eru standa höllum fæti þjóðfélagslega vegna einhvers konar ásakana.“

Hann nefnir sem dæmi að á „föstudagskvöld hófust sjö fréttir ríkissjónvarpsins á umfjöllun um brotthvarf manneskju úr stóli forstjóra félags sem skráð er í kauphöll. Á reiki hefur verið hvort manneskjan hafði verið rekin eða hún sagt upp. Af fréttinni mátti helst ráða að manneskjan hafi átt tvo kosti, að semja um starfslok eða vera rekin. Manneskjan kaus að semja um starfslok og verður, ef marka má fréttina á launum í tvö ár. Ekki fjallaði ríkissjónvarpið um kostnað vinnuveitandans af þessum samningi.“

Sigurður segir að „manneskjan fær einhvers konar bætur innan samninga, sem taka væntanlega mið af launakjörum hennar. Sé mið tekið af tekjum manneskjunnar á umliðnum árum má ætla að bætur til hennar geti numið um eða yfir 150 milljónum króna eftir skatta. Kannski leitar ríkissjónvarpið upplýsinga um þennan kostnað, sem er rekstrarkostnaður sem koma þarf fyrir í verði vöru og þjónustu fyrrum vinnuveitanda.“

Það sem vakti hins vegar mesta athygli Sigurðar við fréttina var hvernig „fréttastofunni tókst að þvæla nafni þjóðþekktrar manneskju inní fréttina, og í besta falli óljósum og margbreyttum frásögnum hennar af meintum kynferðisbrotum.

Við þá umfjöllun voru notaðar myndir af tveimur öðrum manneskjum sem eiga hlut í vinnuveitandanum. Manneskjan hefur borið sakir á þessar tvær manneskjur og fleiri þar á meðal ástmanneskju sína. Manneskja kom fyrst fram með ásakanir sínar á samfélagsmiðlum í október 2021, þegar samband hennar og ástmanneskjunnar hafði súrnað“ og nokkuð ljóst að þarna á Sigurður við mál Vítalíu Lazarevu, sem vakið hefur gríðarlega athygli og hefur haft miklar afleiðingar í för með sér.

Sigurður segir:

„Síðan dró manneskjan allt til baka gagnvart ástmanneskjunni og þau voru sem eitt í atlögum sínum að þremur manneskjum og fjölskyldum þeirra.

Um jólin 2021 urðu vatnaskil því þá réðst manneskjan með hörku að ástmanneskjunni og sakaði hana um að hafa selt hana mansali og fjallaði ítarlega um það í hlaðvarpi. Manneskjan vildi kæra ástmannesjuna fyrir mansal og hlaut mikið lof fyrir framgöngu sína. Nú hafa á ný orðið vatnaskil – manneskjan hefur helst áhyggjur af því að ástmanneskjan fái ekki að spila golf með þeim sem hún telur að ástmanneskjan eigi rétt til að spila golf með.“

Sigurður nefnir að „áður hafði hún haft áhyggjur af ferð ástmanneskjunnar í manngert lón með útlendri manneskju. Ástmanneskjan er sátt með þennan viðsnúning og segist ætla að vera vitni þegar og ef manneskjan kærir, enda verði hið sanna að koma í ljós.“

Að lokum segir Sigurður að „það væri verðugt verkefni einhvers alvöru fjölmiðils að reyna að að fá einhvern botn í frásagnir manneskjunnar og ástmanneskjunnar en ekki láta hafa sig að fíflum umfram það sem orðið er. Góða fólkið fer vonandi að átta sig á því að samfélagsmiðlar og RÚV eru ekki alltaf bestu heimildir sannleikans, frekar en klæðskeri nakta keisarans.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: