Gunnar Þórðarson er látinn 81 árs að aldri. Gunnar var sannkallaður afreksmaður í tónlist. Ekki einungis í dægurmúsík, heldur og í klassískri tónlist.
Eitt sinn sátum við saman í bílnum mínum eftir að ég hafði keyrt hann heim. Ég spurði hvernig það hafi mátt vera að hann hafi 18 eða 19 ára samið lag eins og Bláu augun þín, lag sem var greinilega samið til að Engilbert Jensen nýtti sína mögnuðu söngrödd.
Gunnar sagðist oft hafa komið heim til Engilberts þar sem eldri bræður hans voru í kór og hlustuðu mikið á tenóra. Gunnar og Engilbert hlustuðu líka á tenórana.
Og hvað, spurði ég.
Gunnar sagði það vera söguna að baki laginu ástsæla. Lítillátur að vanda.
Ég þekkti Gunnar eins og hver annar Íslendingur. Þakka samt fyrir að hafa verið honum málkunnugur. Í mínum huga var hann stórmenni með sínar skoðanir á stjórnmálum sem öðru.
Sigurjón Magnús Egilsson.